Dvöl - 01.07.1942, Page 139
297
D VÖL
takast um aðra þætti Arfs íslend-
inga.
Seytjánda öld eftir dr. Pál
Eggert Ólason, V. bindi Sögu ís-
lendinga (Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs og Þjóðvinafélagsins), er og
ágætt rit, þótt með öðru hætti sé
en íslenzk menning. Er þar sam-
ankominn mikill og traustur fróð-
ieikur um flest það, er varðar þetta
myrka tímabil í sögu þjóðarinnar.
Á almenningur hvergi annars stað-
ar völ á jafn víðtækrar og góðrar
fræðslu um þetta tímabil. Bókin
er allstór, en þó verður eigi ann-
að sagt en aðdáunarvert sé, hve
miklu efni er þar þjappað saman.
Um hitt má ef til vill deila, hvort
frásögnin sé gædd því lífi og magni,
er ákjósanlegast hefði verið. —
Alls er fyrirhugað, að Saga ís-
lendinga verði tíu bindi. Verður
mikill fengur að þessu riti, og er
vonandi, að enginn íslendingur sé
svo blindaður af pólitísku afstæki,
er rammt hefir kveðið að í sam-
bandi við þessi rit, að hann þess
vegna forsmái þessa útgáfu Menn-
ingarsjóðs á Sögu íslendinga. Sama
máli.gegnir um Arf íslendinga.
Bré/ og ritgerðir Stephans G.
Stephanssonar, II. bindi, (Þjóð-
vinafélagið) er ein merkisbóka
ársins 1942. Eru í þessi bindi bréf
skáldsins frá árunum 1893—1921,
þar á meðal mörg bréf, er snerta
íslandsförina 1917. Dr. Þorkell Jó-
hannsson hefir séð um útgáfuna.
í fyrsta bindi, er kom út í tveim
heftum árin 1938 og 1939, voru ýms
Sigurður Nordal, prófessor
bréf frá árunum 1889—1913. Enn
eru óútkomin tvö bindi og verða
meöal annars í þeim bréf skáldsins
til Helgu konu sinnar, ritgerðir
hans og smásögur.
2. útgáfa Árbóka Reykjavíkur
eftir dr. theol. Jón Helgason biskup
(útgefandi Leiftur h. f.) kom um
hátíðarnar, stórmerk bók og efnis-
mikil, eins og flestum mun kunn-
ugt.
Annarrar endurútgáfu má og
geta í sömu andrá, þótt sú bók sé
annars eðlis. Er það íslenzk lestr-
arbók Sigurðar Nordals (útgefandi
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundsson-
ar). Þetta er þriðja útgáfa. Hefir
þó sú breyting verið á gerð, að nið-
ur er felld hin stórmerka ritgerð
Sigurðar um „Samhengið i islenzk-