Uppeldi og menntun - 01.01.2007, Blaðsíða 76
76
þörfum nemenda (Trausti Þorsteinsson, 2003). Gott jafnvægi þarf að vera á milli krafna
sem starfið gerir og þeirra bjarga sem eru fyrir hendi (Schaufeli og Bakker, 2004). Þetta
jafnvægi er nauðsynlegt því eitt mikilvægasta viðfangsefni nútíma skólastarfs er að
finna leiðir til þess að mæta mismunandi þörfum nemenda.
AÐFERÐ OG ÞÁTTTAKENDUR
Í rannsókninni er leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvernig halda
kennarar vinnugleði sinni og sleppa við kulnun? Hvaða starfstengdu þættir hafa áhrif
á vinnugleðina? Notaður var samsettur spurningalisti, með stöðluðum erlendum list-
um og spurningum sem rannsakendur sömdu með aðstoð sérfræðinga í skólamálum.
Í þessari grein er ekki fjallað um allar niðurstöður. Gerð er grein fyrir þeim þáttum
sem snúa að kynntum niðurstöðum og lauslega sagt frá öðrum.
Aðferð
Notaðir voru fjórir erlendir spurningalistar auk spurninga rannsakenda. MBI-listinn
(Maslach Burnout Inventory) var notaður eins og í fyrri rannsókninni, 1999. Hann
er með 22 spurningum um einkenni kulnunar, persónulegar tilfinningar og viðhorf,
gerður til þess að mæla kulnun. Maslach skipti spurningunum með þáttagreiningu
í þrjá aðskilda undirþætti tilfinningaþrot, hlutgervingu og minnkandi starfsárangur.
Spurningarnar lýsa allar upplifun fólks á einkennum kulnunar, og spurt er um per-
sónulegar tilfinningar og viðhorf. Hver undirkvarði mælir einn þessara þriggja þátta
og hver spurning gefur 0–6 stig eftir því hversu oft þátttakandi telur sig upplifa hvert
einkenni (Maslach og Jackson, 1986). MBI-listinn var þýddur og staðfærður vegna BA-
verkefnis í félagsvísindadeild HÍ (Rúnar Helgi Andrason og Sigurður Rafn A. Levy,
1992).
Í ritum um erlendar rannsóknir á kulnun virðist MBI-listinn vera algengasta mæli-
tækið og er áreiðanleiki og réttmæti talið mikið (Schaufeli, 2004; Schutte, Toppinen,
Kalimo og Schaufeli, 2000; Maslach og Schaufeli, 1993; Maslach, 1993; Farber, 1991;
Schwab, Jackson og Schuler, 1986; Schwab og Iwanicki, 1982).
Spurningalisti Leiter og Maslach (2000) um heilsufarsþætti vinnustaðarins
(Organizational Check-up Survey) var notaður til að mæla sex vinnustaðarþætti og
fimm stjórnunarþætti. Höfundar líta nú, í anda jákvæðrar sálfræði, á líðan í starfi sem
tvískauta vídd kulnunar og andstæðu hennar, vinnugleði. Það er mikilvægt að átta
sig á því hvaða starfstengdu þættir eru líklegir til þess að valda kulnun, en ekki síður
hvað viðheldur þeirri vinnugleði sem gert er ráð fyrir að fylgi nýjum fagmanni úr
námi og áfram í starfi. Rannsakendur reyndu því bæði að leita að orsökum kulnunar
og þeim þáttum í starfsumhverfi kennara sem viðhalda vinnugleði og vinna á móti
kulnun og gera þannig að verkum að þeir halda starfsþreki, virkni og þátttöku. Hér
verður ekki gerð grein fyrir niðurstöðum um kvarða Leiter og Maslach.
Þá var bæði í þessari rannsókn og 1999 stuðst við spurningalista Rizzo o.fl. (1970)
um hlutverkaárekstra og óskýr hlutverk, sem Schwab og Iwanicki (1982) hafa lagað að
L ÍÐAN KENNARA Í STARFI – VINNUGLEÐI EÐA KULNUN?