Uppeldi og menntun - 01.01.2007, Page 79
79
Gildin á kulnunarkvörðunum þremur voru flokkuð í þrjá flokka í þeim tilgangi að
geta birt krosstöflur sem sýna samhengi hvers kvarða við aðrar breytur. Tafla 2 sýnir
hvaða gildi eru í hverjum flokki, minnst, miðlungs og mest.
Bakgrunnur þátttakenda
Spurt var 10 spurninga um kyn, aldur, hjúskaparstétt, menntun, kennsluréttindi,
heildarstarfsreynslu, lengd starfsreynslu á núverandi vinnustað, starfshlutfall og
nemendafjölda og aldurshóp sem aðallega er kennt nú. Niðurstöður leiddu ekki í
ljós marktækt samband við kulnun, en vísbendingar komu fram um að frekar sé að
vænta tilfinningaþrots og hlutgervingar meðal yngri kennara en eldri. Vísbendingar
komu einnig fram um samband milli kulnunar og álags í einkalífi annars vegar og
svefntruflana hins vegar.
Hlutverkaárekstrar og óskýr hlutverk
Spurt var um það hvort kennarar skynjuðu árekstra hlutverka í starfi sínu og hvort þeim
fyndust þau hlutverk sem þeim er ætlað að sinna nægilega skýr og samrýmanleg.
Tafla 3 – Samband milli hlutverkaárekstra og undirþátta kulnunar.
Hlutverkaárekstrar (%)
Tilfinningaþrot Oft Miðlungs Sjaldan Alls Fjöldi
Minnst 18 34 48 100 50
Meðal 18 29 53 100 51
Mest 60 24 16 100 55
156
Kendall’s Tau-b = -0,323; P<0,001
Hlutverkaárekstrar (%)
Hlutgerving Oft Miðlungs Sjaldan Alls Fjöldi
Minnst 24 30 46 100 50
Meðal 20 38 43 100 40
Mest 45 26 29 100 69
159
Kendall’s Tau-b = -0,186; P<0,01
Hlutverkaárekstrar (%)
Starfsárangur Oft Miðlungs Sjaldan Alls Fjöldi
Minnst 48 23 29 100 48
Meðal 24 35 41 100 34
Mest 25 33 42 100 64
146
Kendall’s Tau-b = 0,156; P<0,05
ANNA ÞÓRA BALDURSDÓTTIR, VALGERÐUR MAGNÚSDÓTTIR