Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 44
170
MOEGUNN
Sérðu umhverfi?) Hún hefir ekki alt af verið í sama stað.
En sé þó hús, ekki mjög stórt, það er ekki steinhús; það
er járn á því. Stendur á sléttum og nokkur hús þar í
kring, og rétt fyrir neðan er sjór, s.em liggur langt, langt
inn. Hún sýnir nú skip, fleiri en eitt, sem hún hefir stund-
um haft miklar áhyggjur út af. Iiún hefir verið fjarska
trygg í sér og góð, ekki fljóttekin, og gerði sér fáa að
vinum, en athugul og trygg, þar sem hún tók því. Það er
svo mikið öryggi í kringum hana; hún er skelfing mikið
hjá þér og kringum þig.
Hún segir, að það hafi verið miklu dýrðlegra og
fegurra en hún hafi nokkru sinni getað hugsað sér að
koma yfir um; biður þig að vera glaðan, hún sé svo oft
hjá þér. Hún segir líka: Það fór eins og eg sagði þér, að
eg fór á undan þér“, yfir um. Iiún hefir líka hreyft til
höfuðið, þegar hún talaði, til þess að gefa orðunum meiri
áherzlu. Hún segist koma svo oft heim. Hún hefir kunn-
að að sauma margt fallegt, og svo hefir hún jíka heklað;
eg sé svo mikið hvítt, sem hún hefir búið til.
Nú sýnir hún mér rúm. Það er lítið; hún segir, að
þú hafir smíðað það fyrir sig, og hún saumað í það, og
svo hafið þið gefið það, og sér hafi þótt svo vænt um þao.
Nú sé eg skrítið gler; það er með röndum, það er eins og
dýr, sýnist það helzt vera glerhundur, það er ekki mjög
stórt, en það er dýr, finst það endilega vera hundur, það
gljáir á það, en það stendur ekki á fótunum.
Það stendur líka hjá konunni þinni ungur piltur með
skolleitt hár, frekar toginleitur, augun gráleit, ennið
nokkuð hátt, myndarlegur piltur, heldur hærri en hún,
hann virðist v.era um tvítugt. (Jón spyr: Sérðu nokkurt
band á milli þeirra?) Jakob svarar: Það er sterkt band
á milli þeirra; hún segist vera búin að hitta þá alla. Þá
segir Jakob: Manstu líka eftir stórum manni? Hann er
toginleitur, dökkhærður; hefir hátt enni. Hann hefir
starfað mikið, mest á sjó. Þetta er stór maður, myndar-
legur, með dökt yfirskegg og mér sýnast augun grá. Eg