Morgunn - 01.12.1934, Page 74
200
MORGUNN
Hvað gerist eftir dauðann?
Kaflar úr bók eftir Shauj Desmonö.
I.
Vér erum nú komin að leiðarlokum í leit vorri að
þeim, sem látnir eru, en lifa þó, og komum þá að þeim
landmörkum, er vér verðum öll eitt sinn að fara yfir og
vér nefnum „Dauða“; en þegar þangað er komið, sjáum
vér eigi lengur óljóst, „eins og í skuggsjá, heldur augliti
til auglitis“, og þar munum vér „þekkja, eins og vér er-
um gerþektir“. Vér erum nú að leggja fyrir sjálf oss einu
spurninguna í heiminum, sem verulegu máli skiptir —
einu spurninguna, semsérhver mannleg vera, er nokkuru
sinni hefir lifað, hefir lagt fyrir sjálfa sig: „Hvað gerist
eftir dauðann?“
En er nú verður leitast við að svara þessari spurn-
ingu á næstu blaðsíðum, þá má það ekki gleymast, að vér
erum yfirleitt að ræða hér um mið og efri astralsvæðin,
þótt ekki sé unt fyrir mennina að ná, meðan þeir enn
eru á jarðsvæðinu, lengra en á fjórða svæði framtíðar-
heimkynna vorra, eftir því, sem mér hefir verið tjáð af
þeim, er sjálfir vita bezt. Þetta er að minsta kosti ekki
unt með „beinu sambandi“, þótt ef til vill sé unt með til-
raunum að ná sambandi við fimta, sjötta og sjöunda
svæðið með margvíslegum ,,milliliðum“.
Ef ekkert gerist, skal enn á ný á það bent, að það
er þá endir alls, þar á meðal þessarar bókar. Ekkert
skiptir þá framar máli fyrir oss. „Skynsemistrúarmaður-
inn“ getur kallað óverulega ,,siðferðilega“ guði sína —
því hann trúir, eins og allir menn, á guði — til vitnis
um, að hann sé fyllilega ánægður með það hlutskipti, er
„Guð“ — eða Eitthvað — hafi úthlutað honum, og er hin