Morgunn - 01.12.1934, Qupperneq 95
M 0 R G U N N
221
vitundarlífið er enn andlegra, á sama hátt og jöi’ð vor
er hlið að eter-heiminum, en fyrir neðan hana er enn
þéttari og ,,jarðneskari veröld“, sem nefnd er Art-Saturn,
sem stjörnufræðingar og jafnvel eðlisfræðingar verða
ekki varir við sökum þess hve sveiflur hennar eru ákaf-
lega lágar.
í sambandi við þetta og þessu nátengd er sú stað-
veynd, að veggirnir milli lífeðlisfræði, eðlisfræði, sálar-
fræði og stærðfræði og annara vísindagreina eru að
hrynja niður, og í stað hinna skaðlegu „sérgreina" for-
tíðarinnah erum vér að finna einskonar guðdómiegt
heildarsamhengi, sem nú er nefnt „sálræn vísindi“.
Að baki og yfir þessum ályktunum, og er vér grann-
skoðum nútíma-vísindi í sambandi við þær, lcoma þessar
staðreyndir í ljós, sem reistar eru á vísindalegum grunni:
(a) Að hinar nýju kenningar um sveiflur, sem
sérstaklega er haldið fram af eðlisfræðingum, sálræn-
um fræðimönnum og stærðfræðingum, að þessi jarðneski
heimur vor sé gerður úr sveiflum milli ákveðinna hraða-
stöðva, þar sem hærri og lægri sveiflur efnisins geri
efnið ósýnilegt líkamlegum augum, leiða til þeirrar á-
lyktunar, að
(b) önnur tilverusvæði, eins svæði hins andlega
heims, geti dulist oss, en þó verið eins veruleg og vor eig-
in tilvera; og því sé það ekki vísindalega útilokað, að
(c) við andlátið förum við inn í belti eða heim,
sem umlyki og þrýsti sér inn í heim vorn, en snúist ekki
um sól vora.
(d) Að ósýnilegar verur þess heims geti heyrt og
séð oss, með því að lækka sveiflur sínar, en vér getum
ekki heyrt eða séð þær nema vér hinsvegar hækkum
sveiflurnar, eins og gerist með miðilsstarfsemi, þangað
til þær samræmast sveiflum astral-heimsins, sem vér ger-
um ráð fyrir að sé til.
(e) Að þetta sé, að lokum, í fullu samræmi við
það, sem vér raunverulega vitum um ,,öldulengdir“ nú,