Morgunn - 01.12.1934, Page 106
232
M0B6UNN
Ritstjórarabb Morguns
um hitt og þetta.
í Czecho-
Slovakiu.
Fyrirsátin.
Spiritisminn er allöflugur í Czecho-Slova-
kiu. Félagsskapurinn utan um hann er
víðtækur og þróttmikill og ötulleikinn og
áhuginn, s.em komið hefir fram í sambandi við þá hreyf-
ingu, er frábær. En ekki hefir það gengið baráttulaust
að koma málinu áfram þar. Byrjunin var sú, að tré-
smiður einn þarlendur, sem hafði verið erlendis, hvarf
heim til föðurhúsanna. Hann hafði kynst sambandi við,
annan heim í utanlandsdvöl sinni, og fór nú að gera til-
raunir með fjölskyldu sinni. Það barst út og flestum þótti.
það mikil óhæfa.
Tilraunamennirnir voru vanir að halda.
fundi sína á sunnudögum síðdegis. Einu
sinni var þeim g.ert viðvart um það frá ,,hinni hliðinni“,
að næst skyldu þeir halda fundinn árdegis á sunnudag-
inn. Þeir fóru eftir því. Þennan dag höfðu andstæðingar
þeirra ráðið af að gera þeim fyrirsát, þegar þeir væru á
leiðinni á fundarstaðinn, og gefa þeim ráðningu, sem
um munaði. Nú gripu þeir í tómt. Þ.eir sendu þá mann
heim til fjölskyldunnar, sem fyrir þessu stóð, til þess að
spyrja um sunnudagsfund þeirra, og honum var sagt, og
brosað við, að fundurinn væri um garð genginn. And-
stæðingarnir vildu þá fá að vita, hvernig á því stæði, að
fundurinn hefði verið haldinn að morgninum einmitt
þetta skiptið. Þeir fengu þá vitneskju um það, að fram-
liðnu mennirnir hefðu varað þá við því að halda fundinn
síðdegis. Andstæðingunum þótti þetta ekki að eins merki-
legt heldur líka geigvænlegt. Síðar komst það upp, að
það var presturinn í þorpinu, sem hafði stofnað til fyr-
irsátarinnar, —