Morgunn


Morgunn - 01.06.1936, Page 90

Morgunn - 01.06.1936, Page 90
84 MORGUNN í því skyni að gefa einhverjum horfinna vina minna tæki- færi til þess að segja mér eitthvað, eða þá að koma orð- um til annara vina sinna. Þetta tækifæri hlaut eg þ. 3. jan. síðastl. Sveinbjörn, eiginmaður frúarinnar, var með okkur á fundi þessum og skrifaði niður það, er gestur sá hafði að segja, er að þessu sinni ávarpaði mig. Eg fann strax að fundur þessi myndi verða með nokkuð öðru sniði en fundir frúarinnar venjulega eru. Stjórnandi frúarinn- ar rabbaði við mig um hríð. Kvað hann tilgang þeirra vera að þessu sinni að hafa fund þennan með nokkuð öðru sniði en venjulega, þeir ætluðu að gera tilraun til þess að hafa þetta fræðslufund, þar sem reynt yrði að varpa ljósi yfir ábyrgð þá, sem lífsstefnuvalinu fylgdi og afleiðing- ar hugsana, orða og verka. Þessi tilraun væri gerð með það fyrir augum að reyna til að auka skilning manna á afleiðingum yfirsjónanna og misskilningsins í von um það, að þær bendingar gætu máske orðið einhverjum íhug- unarefni og forðað einhverjum frá því að varpa sér út í hringiðu léttúðar og kæruleysis. Ef þessar tilraunir tækj- ust, mundu þeir sennilega reyna til að stofna til fleiri slíkra funda. Jakob talaði næst við mig, hann kvaðst ekki mundu taka mikinn þátt í fundi þessum, öðrum væri ætl- að að hafa orðið. Sagði hann mér að sá, er mundi tala við mig, væri látinn standa nokkuð fyrir aftan frúna, frammi fyrir einkennilegri og all margbrotinni vél, — vél þessi væri í sterku kraftsambandi við einhverja fjarlægari stöð, er hann kvaðst ekki geta greint, en frá þessari vél væru sendir sterkir kraftstraumar á talfæri miðilsins, er væru látin endurvarpa því, er hann segði, en hann talaði ekki gegn um hana á sama hátt og hann eða venjulegt væri. Jakob hvarf nú á brott, en rétt á eftir var farið að tala af vörum frúarinnar með sterkri og þróttmikilli rödd, og þekti eg þegar að það var rödd þess, er hafði ávarpað okkur á fundinum þann 28. okt. síðastl. ár. Nú læt eg hann sjálfan hafa orðið:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.