Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Side 20

Morgunn - 01.12.1978, Side 20
114 MORGUNN trúarskoðunum blátt áfram stórhættuleg. En Swedenborg bjó yfir óttaleysi þess, sem telur sig þjón sannleikans. Hann dreifði afritum af verkum sínum um meginlandið og óskaði eftir um- sögnum um þau. „En ekki ein einasta rödd svaraði,“ eins og hann komst að orði. Var þetta þá allt unnið fyrir gýg? Nei. Það voru, sem betur fór, uppi menn á þessu tímabili, sem töldu fulla ástæðu til þess að kynna sér þessar, að ýmsu leyti, byltingarkenndu skoðanir. Emerson, Havvthome, Carlyle, Thoreau, Coleridge, De Quincey, Maeterlinck og Goethe vom menn, sem ekki létu segja sér, hvað þeir mættu lesa. Og með hjálp þessara mikil- menna gat ímyndunarafl Swedenborgs eytt ævagömlum for- dómum og fyllt heiminn sólskini nýrrar hugsunar. Hið fræga skáldverk Dantes um líf og dauða Divina Com- media, hafði lengi heillað hugi manna með hinum sterku lit- brigðum elds og haturs, en verk Swedenborgs Himnasýnir hefur hins vegar snortið hjörtu mannanna, því þetta fagra ljóð er málað með pensli miskunnseminnar á léreft táranna, eins og aðalheimildarmenn mínir Henry Thomas og Dana Lee Thomas, hafa svo fallega komist að orði. t------------------------------------------------N TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF HANDA ÞEIM SEM ÁHUGA HAFA Á ANDLEGUM MÁLUM SRFÍ á nokkur hundruð eintök af Morgni 1950—1976. Meðan upplag endist býSur félagiS til sölu 4 eintök (2. árg.) í smekklegu plastumslagi á mjög hagstœSu verSi. Gjöfinni getur fylgt eins árs áskrift af tímaritinu. Upp- lýsingar á skrifstofu félagsins, GarSastrœti 8, Rvík. Sími 18130. Skrifstofan er opin alla virka daga nema laugar- daga kl. 13,30—17,30. v j

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.