Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 7
HIMNASYNIR SWEDENBORGS
101
Emanuel Swedenborg fæddist í góðum efnum. Faðir hans
var biskup, vinur sænsku konungsfjölskyldunnar, stórgáfaður
og mikils metinn maður. Móðir hans var hins vegar ósköp
venjuleg kona, hyggin og heiðarleg dóttir námuforstjóra ríkis-
ins. Við fæðingu drengsins varð föður hans litið til himna og
ákvað að hann skyldi heita Emanuel, sem þýðir „Guð er með
oss“. En hin hagsýna móðir hafði meiri áhuga á að vita, hve
mikið sveinn vó á voginni.
Að sið kirkjunnar manna var honum veitt strangt uppeldi,
sem lagði honum þungar skyldur á herðar. Snemma fór að
bera á óvenjulegum gáfum hans og sterkum persónuleika. Um
æsku sina segir hann hæversklega einhvers staðar. „Ég lét
i ljós hugsanir sem ullu furðu foreldra minna og sögðu þau
stundum, að vissulega töluðu englar af munni mínum.“
Englarnir hafa víst haldið áfram að tala af munni hans
fram eftir æskuárum, því að aðeins tuttugu og tveggja ára
er hann orðinn fullnuma doktor í heimspeki við Uppsalahá-
skóla. Vildi stundum bregða fyrir á þessum áium hroka hins
óþroskaða snillings í setningum eins og þessum: „Þetta er
staður lítilla tækifæra; nám mitt og rannsóknir eru alls ekki
metnar af þeim, sem ættu að hvetja mig í þeim.“
Hann pakkaði því saman bókum sínum og lagði í reisu vest-
ur yfir meginlandið um Holland, Frakkland og til Flnglands.
F'rá Lundúnum skrifar hann foreldrum sinum m. a.: „Ég
stúdera Newton á hverjum degi og mig langar mjög til þess
að sjá hann og hevra.“ Og nokkrum vikum síðar skrifar hann:
„Hvað viðvikur stjörnufræðinni, þá lief ég í henni tekið þeim
framförum, að ég hef uppgötvað ýmislegt, sem ég hygg að
geti verið til mikilla nota við það nám. Ég hef þannig upp-
götvað óbrigðula aðferð til þess að ákvarða lengdargráðu á
jörðinni með aðstoð tunglsins . . .“
Ómettanleg fróðleiksfýsn hans kenndi honum að færa sér
allt í nyt,, jafnvel það, hvar hann valdi sér húsnæði. Hann
segir: „Ég færi mér húsnæðið í nyt. Fyrst bjó ég hjá úrsmiði,
síðan trésmiði, og nú er svo komið, að ég er sjálfur farinn að
smiða stærðfræðileg verkfæri."