Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 61

Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 61
BÆKUR 155 hans var honum gífurlegt átak, sökum þess að hann varð að hefja þessa byltingu fyrst og fremst gegn þeim, sem hann unni mest. Að þessu leyti er saga Krishnamurtis alveg einstök °g sýnir okkur betur en nokkuð annað hve gifurlegt þrek þarf stundum til þess að fylgja sannleikanum, hvað sem það kostar. Krishnamurti varð að valda þeim vonbrigðum sem hann átti allt upp að inna. Fólki eins og Annie Besant, hinum mikil- hæfa leiðtoga guðspekistefnunnar og dulspekingnum Charles Webster Leadbeater. En þau hófu hann upp úr sárustu fá- tækt og armæðu til mennta og göfugs lifs. En það varð hið beizka hlutskipti hins göfuga Krishnamurtis, sem aldrei gleymdi þakklæti sínu til þeirra, ást og virðingu, að hafna að lokum því stórkostlega hlutverki, sem þau höfðu allt frá upp- hafi ætlað honum, að verða eins konar nýr Kristur. Þessi ævisaga sýnir Ijóslega hvílík ofurbyrði þetta varð þessum kærleiksrika manni, sem taldi það skyldu sína að fylgja sann- leikanum, eins og hann skildi hann, jafnvel þótt það kostaði að hann kynni með því að særa þá sem verið höfðu honum bestir og hann unni mest. Á tímabili var hann orðinn svo ör- vinglaður sökum þessara innri átaka, að hann hugðist draga sig út úr heiminum og gerast einsetumaður á Indlandi. En hann stóðst þá freistingu og hefur fram á þennan dag haldið afram að uppfræða okkur Vesturlandabúa. Og það eru þessar raunir sem hafa hert eld sálar hans og gert hann að einu mesta mikilmenni þessarar aldar. Um nærri hálfrar aldar skeið hefur Krishnamurti ferðast um heiminn og flutt trúarlegan boðskap sinn og fara áhrif hans vaxandi með hverju ári, því hann dregur hlustendur að ser eins og andlegur segull. Þessi ágæta bók fjallar um æsku hans og fyrstu mann- dómsár. Rekur þroskaferil hans allt frá þeim tíma, þegar leið- t°gar Guðspekifélagsins tóku hann upp á sína arma, fjórtán ara gamlan og hugðust gera hann að nýjum Messíasi, og til þeirrar örlagastundar þegar hann, þrjntíu og fjögurra ára gamall sleit öll tengsl sín við þá og leysti upp félagið, sem stofnað hafði verið til þess að undirbúa komu heimsfræðarans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.