Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 30
124
MORGUNN
isins, sem lýst var, segir hinsvegar að þessi flötur sé alls ekki
fyrir hendi. Hér er þannig um fullkomna þverstæðu að ræða,
nema einhver önnur skýring komi hér til.
Þegar þetta er hugleitt verður fyrst fyrir að athuga hvort
skýringa geti verið að leita í einhverjum aukaverkunum. —
Það er vitað í því sambandi, að ofsalega hraðar hringhreyf-
ingar eiga sér stað innan atómkerfanna. Sé það hugleitt
hvemig slikt verkar verður það ljóst að af hröðum hring-
hreyfingum koma fram alls konar aukaverkanir (secondary
effect). Miðflóttaaflsverkanir koma af snúningi hjóls. Raf-
magn framleiðist með snúningi tveggja segla i gegnum afl-
svið hvers annars, með sérstökum útbúnaði. Og þá kemur hið
merkilega fyrirbæri: rafspennubreytirinn. Hann tekur við
rafstraumi inn á aðra hliðina og þar myndar þessi straimiur
hringsnúning í spólunni þeim megin. Siðan er önnur spóla
hinum megin sem ekki snertir hina og við það að orkan fer
i hring í fyrri spólunni, þá myndast utan um hana orkusvið,
sem svo spanar upp orku í hinni spólunni, með þeim afleið-
ingum að raforka flyst á milli, eða öllu heldur myndast i
hinni spólunni, og er hún á hærra eða lægra spennuþrepj,
eftir því hver fjarlægðin er á milli og hvert hlutfall er milli
snúninganna í fyrri og aftari spólunni. — M. ö. o. orkan um-
hverfis fyrri spóluna fyllir rúmið umhverfis sig og þegar
hin er innan þessa sviðs þá flyst orkan á milli með þessum
hætti og með þessum einkennum. — Þannig er um að ræða
að til sé eitthvað, sem fyllir þannig rúmið, sem er af sama
toga og ljósið, en rafmagn, segull og ljós eru allt hluti af
rafsegulorkunni í alheiminum. Verkunin af þessu kemur með
áþreifanlegum hætti fram af gagnverkan skeifuseglanna með
sampóla setta á móti hvorum öðrum, en það kemur eins og
bein efnisleg snerting af óefnislegum orkusviðum norður- og
suðurpólanna. Þetta er m. ö. o. efnisleg mótstaða þótt ekki
sé um efnislega snertirigu að ræða. Þetta segir ]rað m. ö. o.
að í efninu eru til verkanir orku, sem veitir mótstöðu óefnis-
legri verkun annars orkukerfis með sama hætti eins og um