Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 70
164
MORGUNN
reist á því, að til séu lögmál. En hvað eru þessi lögmál? Við
höfum ekki sett þau sjálf, heldur erum við aðeins að fálma
okkur i áttina til þess að kynnast þeim — innan veggja ófull-
kominna skynfæra og skynsemi.“
En um vísindin segir Árni Óla sjálfur í lokakafla bókar
sinnar:
„Visindin eru hinn hvíti galdur seinni alda. Þau hafa
umbylt öllu á jörðinni —- nema trúnni. Þegar vísindamenn-
irnir héldu, að nú væri sannað, að kenningar trúarinnar væru
hégómi, þá kom alltaf eitthvað nýtt í ljós, sem þurfti frekari
rannsókna við. Og þegar svo uppgötvaðist að lífið hlítir ekki
lögmálum efnisins, fór að vandast málið. Og enn bættist ny
furða við þegar uppgötvaðist, að efnið er ekki annað en bund-
in orka. Nú er svo komið, að margir frægir visindamenn hafa
viðurkennt, að ekki verði haldið lengra áfram á sömu braut,
nema viðurkennt sé, að til sé alheimsskapari, Alfaðir, guð.“
Og Árni Öla endar þessa athyglisverðu bók sína um dul-
heima íslands með þessum orðum:
„Trúin er hinn æðsti kraftur í framsókn mannkynsins.
Hún ein megnar að opna mönnum hugséðan heim og af þeirri
skyggni eru allar sannar framfarir sprottnar. Trúin er leið
til hinnar æðstu vizku og manngöfgi. Eins og siðprýði er að-
alsmerki einstaklingsins, svo er göfgi trúarinnar í hverju landi
mælistika á andlega menningu þjóðarinnar, sem þar á heima.“
LÁTNIR FLUGMENN BIRTAST
FYRRVERANDI STARFSBRÆÐRUM SÍNUM
Nýlega kom út bók eftir rithöfundinn John G. Fuller sem
nefnist DRAUGURINN f FLUGI 401 (THE GHOST OF
FLIGHT 401). I bókinni fjallar Fuller um ýmsa undarlega
atburði, sem átt hafa sér stað frá því fyrsta júmbóþotan fórst
á Vesturlöndum, en það var í Florida þann 29. desember