Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 75
Ævar Kvaran, rithöfundur.
Ég vil þakka þér kærlega fyrir útvarpserindin þín í vetur,
þar sem þú varst að bregða upp myndum fyrir okkur úr ís-
lenzku fornsögunum af sálrænu fölki. En af því ég er Fær-
eyingur langar mig að senda þér nokkur orð af einni frægustu
sögupersónu okkar, Þrándi í Götu, og er hún svona:
I Færeyingasögu er getið um tilraun til þess að hafa sam-
band við framliðna menn og fer þar með hlutverk miðilsins
ein frægasta sögupersóna Færeyinga, Þrándur í Götu.
Menn voru i vafa nokkrum um siðustu afdrif Sigmundar
Brestissonar og þeirra félaga og vildi Þrándur vita vissu sína.
„Þrándur hafði þá látið gera elda mikla í eldaskála, og
grindur fjórar lætur hann gera með fjórum homum, og niu
reita ristir Þrándur alla vega út frá grindunum, en hann sezst
a stól milli elds og grindanna; hann biður þá nú ekki við sig
tala, og gera þeir svo. Þrándur situr svo um hríð; og er stund
leið, þá gengur maður inn í eldaskálann, og var allur alvotur.
Beir kenna manninn, að þar var Einar Suðureyingur. Hann
gengur að eldinum og réttir að hendur sínar litla hrið, og
snýr út eftir það. Og er stund líður gengur maður inn í elda-
húsið. Hann gengur að eldi og réttir til hendur sínar, og gengur
ut siðan. Þeir kenndu að þar var Þórir. Brátt eftir þetta geng-
Ur hinn þriðji maður í eldaskálann. Þessi var mikill maður
°8 mjög blóðugur. Hann hafði höfuðið í hendi sér. Þemia