Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 59
RITSTJÓRARABB
153
LÁTNIR LIFA
boðin félags-
mönnum.
Bókaútgáfan örn og örlygur mun ann-
ast útgáfu þessarar bókar. LÁTNIR LIFA og
verður vandað til hennar í hvívetna. Til
verður vandað til 'hennar í hvívetna.
Þess er að vænta, þegar út kemur bók um efni, sem
Islendingar hafa lengi verið frægir fyrir áhuga á, að henni
verði vel tekið, og þá ekki sízt þar eð hún er skrifuð af þjóð-
kunnum höfundum. Ef að líkum lætur um bækur, sem fjalla
um hin ótrúlega furðulegu svið mannssálarinnar, þá mun
íslenzkur almenningur taka þessari bók vel. En þó mun hún
ekki sizt verða kærkomin hinum, sem svo mikinn áhuga hafa
sýnt á þessum mikilvægu málum, að þeir hafa gerzt félagar
í sálarrannsóknafélögunum á Islandi. Þess vegna hefur verið
samið um það við útgefendur að þessu fólki verði gefið tæki-
færi til þess að fá þessa nýju bók með sérstöku áskriftarverði.
Sálarrannsóknafélögunum verður öllum send sérstök plögg
þessu viðvíkjandi.
Þá vil ég benda öllum þeim, sem á'huga hafa á bókum um
þau undur sem eru að gerast í sífellu um víða veröld í sam-
bandi við sálræna hæfileika fólks allra landa og kynflokka,
að bókaútgáfan örn og örlygur hefur ákveðið að hefja
nú í haust fastan útgáfuflokk bóka um þetta efni, og hefur
Æ. R. K. verið falið að sjá um þennan sérstaka flokk bóka.
En afmælisbók S. R. F. I. á sextíu ára afmælinu, LÁTNIR
LIFA, verður einmitt fyrsta bókin i þessum bókaflokki.
Heimilisfang ritstjóra MORGUNS er:
Ævar R. Kvaran,
Kambsvegur 25, Reykjavik. Sími 32175.