Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 55
SÁLARRANNSÓKNAFÉLAG ISLANDS
SEXTÍU ÁRA.
Upphafið.
Þótt Sálarrannsóknafélagið geri ekki þá kröfu
til neins manns, sem kærir sig um að gerast
félagi þess eða kynna sér skoðanir þess, að hann játi neinar
sérstakar kenningar, hvorki um líf eftir dauðann eða nokkuð
annað, þá verður ekki gengið fram hjá þeirri sannre}md, að
stofnendur bessa félags voru orðnir sannfærðir um að kenn-
mgin um líf að þessu loknu væri byggð á sannleika, áður en
þeir stofnuðu það.
Það rit sem upphaflega hafði vafalaust mest áhrif á skáldið
Einar H. Kvaran var áreiðanlega rit F. W. H. Myers Per-
sónuleiki mannsins og framhaldslíf hans eftir dauðann. Bókin
kom út tveim árum eftir lát höfundarins, en hann lézt 1901.
Hún mun hafa verið tiltölulega nýútkomin, þegar Einar las
hana um 1903. Bók þessi hefur hingað til verið talin klassiskt
verk í sálrænum rannsóknum, þvi höfundur hennar var einn
af virtustu menntamönnum Bretlands og hafði hafið rann-
soknir sinar þegar árið 1870. Hann varð einn af aðalfor-
góngumönnum þeirra lærðu og virtu manna, sem stofnuðu
Brezka sálarrannsóknafélagið 1882. Sökum þess álits sem
ÁTyers naut á Bretlandi sem hálærður og gáfaður maður, vakti
þetta óvenjulega ritverk hans mikla athvgli. Sennilega fyrir
hein áhrif þessa ritverks skrifar Einar svo grein i blað sitt
Á orðurland um ódauðleika sálarinnar og segir þar frá áður-
nefndri bók. Árið 1905 flytur Einar svo fyrirlestur í Reykja-