Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 43
ÆVAR R. KVARAN:
NIÐURSTÖÐUR
VISINDALEGRA RANNSÓKNA BENDA
TIL LÍFS AÐ ÞESSU LOKNU
I.
Fyrir nok'krum árum kynntist ég á heimili þáverandi for-
seta S. R. F. I., Guðmundar Einarssonar, bandarískum vís-
indamanni, sem mjög er mér minnisstæður. Hann heitir Ian
Stevenson. Hann var yfirmaður þeirrar deildar læknahá-
skólans i Virginiu í Bandaríkjunum, sem fæst við tauga- og
geðlækningar. Dr. Ian Stevenson er löngu orðinn kunnur
meðal vísindamanna heimsins fyrir frábærar, vísindalegar
rannsóknir á tilfellum þar sem talið hefur verið að um end-
urholdgun væri að ræða. Hann hefur sjálfur persónulega
rannsakað hundruð slíkra tilfella frá upphafi. Árið 1966 kom
ut fyrsta bók hans um þessar rannsóknir og hlaut mikið lof.
Hann var svo elskulegur að gefa mér eintak af þessari merku
bók sinni, en hún heitir Twenty Cases Suggestive of Rein-
carnation (eða Tuttugu tilfelli sem benda til endurholdgunar).
U það þýðir auðvitað, að eftir að höfundur hefur beitt á vís-
utdalegan hátt öllum þeim skýringum öðrum en endur-
holdgun sem fyrír finnast, þá segir Ihann beinlínis í bókar-
sínum, að þessi tilfelli, sem hann hefur svo vandlega
rannsakað bendi til endurholdgunarskýringarinnar, því hún
ein er eftir.
Ég hygg að vísindamennirnir dr. Karl Osis og dr. Erlend-