Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 15
HIMNASÝNIR SWEDENBORGS
109
Ritninguna og tímatal hennar hókstaflega. Þótt sögur Biblí-
unnar vœru gerðar af efni rúms og tíma, holds, elds og jarðar,
þá væru þær einungis aðferð Guðs til þess að láta í ljós eilífan
sannleika hinna andlegu sviða. Þannig væri Sköpunarsagan til
dæmis aðeins dæmisaga. Sex dagar sköpunarinnar tákna þann-
ig hin sex stig, sem maðurinn gengur í gegn um til að öðlast
þekkingu, kærleika og fullkomnun i mynd Guðs. Fyrst skap-
aði Guð fiska og fugla. Þessar skepnur tákna fyrsta stig and-
fegs lifs, þar sem trúin er ríkjandi þáttur. Dýrin, sem næst
koma, tákna þann þátt hins andlega lífs þar sem kœrleikurinn
er virkastur. Og að lokum kemur maðurinn, kóróna sköpunar-
verksins, hin endurnýjaða sál, sem ekki einungis býr yfir trú
og kærleika, heldur einnig skilningnum. Ennfremur má ekki
taka skilningstré góðs og ills í Edengarði í bókstaflegum skiln-
uigi. Það er tákn veraldlegrar þekkingar og tilfinninga-nautn-
ar. „En þess háttar fæða er hættuleg æðra lífi mannsins,“
sagði Swedenborg.
Með svipuðum hætti áleit hann að margar kenningar kirkj-
unnar þyrfti að túlka á ný; og hann reyndi með djarfhuga
einlægni að snúa trúarbrögðunum aftur til forns einfaldleika.
Þannig ræðir hann lil dæmis sérstaklega um bókstafskenningu
Þrenningarinnar. Um það segir hann m. a.: „Því fer fjarri,
að Jesús sé sonur Guðs og annar í röð þrenningarinnar; hann
sjálfur Guð, hinn eini Guð og túlkar alla Þrenninguna í
persónu sinni.“ Swedenborg er andvígur kenningu Kalvinista
uni forlög, eða náðarútvalningu; segir hann að frelsun manns-
ms liggi ekki í trú hans, heldur lyndiseinkunn og vilja hans
til þess að láta gott af sér leiða. Eða með orðum Swedenborgs:
»Eíf það, sem leiðir til himnaríkis, liggur ekki í því að draga
sig út úr heiminum, heldur að starfa í honum . . . Guðrækilegt
bferni án góðverka leiðir manninn jafn langt burt frá himn-
um, eins og það er almennt álitið leiða til himnaríkis.“ Maður-
mn á sem sagt að lifa starfsömu lífi í þjóðfélaginu, en ekki
bænalífi í einrúmi. Þá telur Swedenborg það mesta bama-
skap að trúa þvi, að Guð dragi anda mannsins til himna. Það
er ástand innra lífs mannsins, sem skapar honum eigið himna-