Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 74
168
MORGUNN
nöfnum sinum til þess aS verða ekki fyrir refsiaðgerðum af
hálfu stjórnar flugfólagsins.
Við þetta vaknar athyglisverð spurning: I hve mörgum
tilfellum skyldi fólk vera með þessum hætti kúgað til þess
að segja ekki sannleikann?
Það er að vísu sálfræðilega skiljanlegt, að það valdi há-
lærðum mönnum stundum gremju, að fyrirbæri skuli alltaf
vera að gerast, sem ekki eru í samræmi við þekkingu þeirra,
en lifið tekur ekki tillit til takmarkaðrar þekkingar og það
er því langskynsamlegast að sætta sig við það, að fleira sé
til en maður skilur. En i þessari frásögn kemur fram ný hlið
þessara erfiðleika, sem lýsa sér i því, að það gæti hugsanlega
haft í för með sér fjárhagslegt tap, að sagt sé frá fyrirbærum
sem gerst hafa og fjöldi fólks hefur orðið vitni að. Hér er
það Mammon sem slær í borðið.
En allt er þetta unnið fyrir gýg. Fyrirbærin gerast hvað
sem hver segir, og það svo oft og svo víða, að því verður
ekki lengur leynt með neinum brögðum. Þeir sem miklu máli
skipta, þ. e. visindamennirnir, eru auðvitað alltof greindir
menn til þess að halda sliku áfram. Fyrirba'rin gerast og það
verður að rannsaka þau, jafnvel þótt þau virðist brjóta i bág
við vísindalega þekkingu.