Morgunn - 01.12.1978, Blaðsíða 32
126
MORGUNN
sannað að þess konar efni er til. tJr slíku efni gætu þannig
verið til efnisheimar sams konar og vor, en ef þeir mættust
myndu báðir þurrkast út í ægilegri sprengingu vegna hins
andstæða eðlis. Möguleikinn er þannig fyrir hendi, en hvort
hann á sér tilvist í veruleikanum í ægidjúpi rúmsins veit eng-
inn.
En þótt eitthvað slíkt væri fyrir hendi, gefur það enga úr-
lausn á gátunni miklu um hugsanleg önnur lífssvið, segir að-
eins að til geti verið hliðstætt með andeðli. Leitinni að svari
héldur þannig áfram. —• Þannig koma upp í sambandi við
þetta aðrar spumingar út frá þvi, sem hér hefur verið brotið
upp á. Þær eru þessar: Ef vér nú höfum í einni ákveðinni
áttund af orku, eins og hinu sjáanlega ljósi, aukaverkanir
(secondary effects), sem stafa af hringhverfingum hvirfla
þeirra, er vér nefnum efniseindir eða atóm, með rafeinduni
sínum og miðkjörnum (electrons and protons), — þá er spurn-
ingin sú, hvort ekki geti verið um að ræða, að i öllu ljósrofi
hins ósýnilega hluta rafsegulkraftsviðanna (electro-magnetic
spectrum) fyrir ofan og neðan bylgjulengd hins sýnilega ljóss,
að þar geti verið um að ræða hliðstæðuverkanir við það, sem
á sér augljóslega stað um áttundina er grundvallar hið sýni-
lega efni, þ. e. hugsanlega hvirfla og hvirfilhreyfingar í þvi,
með sama móti eins og í áttund hins sýnilega ljóss (og efnis),
— með þeirri afleiðingu að raunverulega geti verið um að
ræða tilveru efnis og efnisveruleika á bæði hærri og lægri
bylgjusviðum orkunnar en vér sjáum og getum skynjað. —
Ef þessu væri þannig varið, sem hvorki virðist vera fjarstætt
né óliklegt, að gera megi ráð fyrir með fullri skynsemi, þá
gætu þannig verið til efnisheimar, sem væru fullkomlega
jafn áþreifanlegir og sjáanlegir eins og efnisheimur vor, — en
sem væru sín i milli algjörlega ósýnilegir og óáþreifanlegir,
þótt innan hvers sviðs fyrir sig væri um sams konar verkim
og fyrirbæri að ræða eins og á voru sviði, og gagnvart hugs-
anlega þeim, sem byggjust eða væri búið lífsgerfi úr sam-
kynja orkuhjúpum, ef svo mætti orða það. M. ö. o., að þar
gæti verið um að ræða raunverulegan áþreifanleika og sýni-