Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Side 59

Morgunn - 01.12.1978, Side 59
RITSTJÓRARABB 153 LÁTNIR LIFA boðin félags- mönnum. Bókaútgáfan örn og örlygur mun ann- ast útgáfu þessarar bókar. LÁTNIR LIFA og verður vandað til hennar í hvívetna. Til verður vandað til 'hennar í hvívetna. Þess er að vænta, þegar út kemur bók um efni, sem Islendingar hafa lengi verið frægir fyrir áhuga á, að henni verði vel tekið, og þá ekki sízt þar eð hún er skrifuð af þjóð- kunnum höfundum. Ef að líkum lætur um bækur, sem fjalla um hin ótrúlega furðulegu svið mannssálarinnar, þá mun íslenzkur almenningur taka þessari bók vel. En þó mun hún ekki sizt verða kærkomin hinum, sem svo mikinn áhuga hafa sýnt á þessum mikilvægu málum, að þeir hafa gerzt félagar í sálarrannsóknafélögunum á Islandi. Þess vegna hefur verið samið um það við útgefendur að þessu fólki verði gefið tæki- færi til þess að fá þessa nýju bók með sérstöku áskriftarverði. Sálarrannsóknafélögunum verður öllum send sérstök plögg þessu viðvíkjandi. Þá vil ég benda öllum þeim, sem á'huga hafa á bókum um þau undur sem eru að gerast í sífellu um víða veröld í sam- bandi við sálræna hæfileika fólks allra landa og kynflokka, að bókaútgáfan örn og örlygur hefur ákveðið að hefja nú í haust fastan útgáfuflokk bóka um þetta efni, og hefur Æ. R. K. verið falið að sjá um þennan sérstaka flokk bóka. En afmælisbók S. R. F. I. á sextíu ára afmælinu, LÁTNIR LIFA, verður einmitt fyrsta bókin i þessum bókaflokki. Heimilisfang ritstjóra MORGUNS er: Ævar R. Kvaran, Kambsvegur 25, Reykjavik. Sími 32175.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.