Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Side 47

Morgunn - 01.12.1978, Side 47
NIÐURSTOÐUR . . 141 þá ekki sízt hæfileikum miðla, enda hafði hann fylgst vel með rannsóknum Ameríska sálarrannsóknafélagsins á hæfi- leikum Hafsteins Björnssonar. II. Allt frá upphafi (1920) hefur Morgunn stutt þá kenningu, að dauðinn sé engan veginn endir allrar mannlegrar reynzlu, að við lifum áfram að þessu lífi loknu og það sé ákaflega mikilvægt hverjum manni að gera sér sem fyrst grein fyrir því, sökum þess að þessum sannleik fylgir óhjákvæmilega skilningurinn á því, að reikningar okkar verði ekki að fullu gerðir upp í þessu lífi. Það er hverjum hugsandi manni alveg ljóst með þvi einu að líta i kringum sig, að niðurstaðan af því að trúa ekki á líf eftir dauðann hlýtur að leiða til þeirrar skoðunar, að réttlæti sé ekki til. Sú skoðun að þetta líf sé öll tilvera mannsins getur því leitt til eyðileggjandi hugsunar- háttar. Ef maður telur sig staddan i frumskógi, þar sem of- beldi, fals og fláræði eitt sé til nokkurs gagns og sá sterki eigi tvimælalaust að ráða, þá getur slikt leitt til miskunnar- Huss lífs, sem getur eyðilagt viðkomandi. Þeir sem trúa á annað líf eða telja það beinlinis hafa verið sannað fyrir sér, sökum þess sem þeir hafa upplifað, hljóta því jafnframt að gera sér þess fulla grein, að hver er sinnar gæfu smiður. Að eminning Páls um að eins og maðurinn sái hljóti hann að l,ppskera, er lögmál, sem enginn kemst undan. En okkur gengur stundum erfiðlega að átta okkur á því hvort gæfan er okkur hliðholl, sökum rangs mats á því í hverju gæfa hggur. Hverja trú sem menn þykjast játa opinberlega, þá er það sannreynd, að á Vesturlöndum og víðast annars staðar eru menn metnir eftir hæfileikum sínum til þess að safna fé °g græða það, fyrst og fremst. Áhrifamesti guð Vesturlanda er Mammon, Jiótt ])ess sé gætt að viðurkenna slikt aldrei epmberlega. Hér þarf að hefjast endurmat þessara skoðana °g er það raunar þegar hafið hjá fjölda ungs fólks meðal

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.