Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Page 53

Morgunn - 01.12.1978, Page 53
NIÐURSTOÐUR . . 147 frásagnir hins ólíkasta fólks um raunverulega tilveru, raun- verulegt lif eftir svokallaðan dauða, er i algjöru samræmi við það sem beztu miðlar hafa til dæmis skrifað ósjálfrátt um hvernig fyrstu umskiptin væru. Hér virðist því fram komin stórathyglisverð ný aðferð til þess að undirstrika og leggja áherzlu á það, sem sálrænt fólk hefur sagt frá um aldir. Ófreskt fólk hefur um aldir orðið að vera eins og örfáir sjáendur í heimi blindra. 1 frásögnum þess eru erfiðleikamir eins og rauður þráður í lífi þess, nema það dylji hæfileika sína og þykist vera eins og allur almenning- ur til þess að fá að vera í friði. Einkanlega er oft raunalegt að lesa um slíkar raunir barna, þegar þau í fyrsta sinni segja fullorðnum frá sýnum sinum eða dulheyrnum, en hljóta skammir eða barsmiðar fyrir að vera sjáandi á sviðum þar sem flestir eru blindir. Meðal lærðra manna, sem vilja halda virðingu og vinsæld- um starfsbræðra sinna, er mjög algengt að þeir fari með sál- rænar gáfur eins og hernaðarleyndarmál. Þetta minnir mig á það sem hinn hugrakki vísindamaður dr. Shafica Kara- gulla segir frá í bók sinni, Nýjar víddir í mannlegri skynj- un, sem ég 'hef áður fjallað um. — Þegar þessi kona sem framinn í læknavísindum blasti við, leyfði sér að halda því fram opinberlega að athuguðu máli, að til væri fólk með uiagnaða sálræna hæfileika, til dæmis fólk sem gæti séð skemmdir í innri líffærum á svipstundu og ýmislegt því svipað, og að þetta fólk gæti orðið læknavísindunum að miklu Hði, þá lokuðust lienni allar dyr innan læknavísindanna. Hún 'hsetti að fá að starfa með þeim miklu vísindamönnum, sem fiún hafði unnið þrekvirki með, sjóðir til styrktar vísinda- rannsóknum lokuðust henni og fyrri starfsbræður hennar forðuðust hana eins og heitan eldinn. Henni var útskúfað. Hún varð fjárvana og varð að byrja aftur frá upþhafinu. En hún neitaði að víkja af þeim vegi, sem hún taldi leiða til sannleikans, eins og hún sá hann og fómaði svokölluðum »visindaframa“ sínum og öllum vonum um frægð og viður- kenningu af hendi starfssystkina sinna. Þessi litla, viljafasta

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.