Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Page 57

Morgunn - 01.12.1978, Page 57
RITSTJÓRARABB 151 bærum. Þetta hefur verið gert með máraðarlegum erindum og útgáfustarfsemi. Þótt leið forystumanna spíritismans á Islandi s-7 ^en a hafi verið brött og torsótt, þá hefur mikið áunnist. Island telst nú til þeirra landa, þar sem skoðanir hans njóta einna mestrar virðingar meðal þjóð- arinnar. Það eru að sjálfsögðu ekki einungis áhrif ritfærra manna, heldur fyrst og fremst, að Island hefur iðulega haft á að skipa ómetanlegum miðlum, sem með starfi sínu hafa getað sannfært fjölda manna á persónulegan hátt á sam- bandsfundum, bæði einkafundum og opinberum, því hér hafa einnig verið haldnir opinberir skyggnilýsingafundir i stærstu samkomuhúsum landsins, sem hafa sannfært enn fleiri. Starfsamastur þessara miðla hefur undanfarin 40 ár verið Hafsteinn Björnsson, sem lézt á s. 1. ári og er hans þegar sárt saknað. Hann vakti athygli langt út fyrir landsteinana fyrir óvenjulega hæfileika sína, og var Ameríska sálarrann- sóknafélagið byrjað rannsóknir á hæfileikum hans, sem ekki var lokið, þegar hann féll frá. En það er einmitt hið mikil- vægasta að hæfileikar góðra miðla séu rannsakaðir á vís- indalegan hátt af hlutlausum og vel menntuðum mönnum. Sextíu ára afmæli S. R. F. í. mælum sínum Stjórn félagsins hefur ákveðið að nota þetta merkisafmæli til þess að minnast nokkurra látinna félaga, sem á sínum tíma höfðu mikil áhrif á Islendinga í ræðu og riti með um- og fræðslu um mikilva^gi kenninga spíri- tismans. Þetta verður gert með útgáfu bókar, sem ber nafnið EÁTNIR LIFA. Efni hennar verður fyrst og fremst úrvals- rilgerðir eftir sjö menn, sem allir urðu þjóðkunnir fyrir rit- smíðar um þetta efni og margt fleira. Hér að framan hefur lítillega verið getið aðalfrumherjanna, sem stofnuðu S. R. F. 1., þeirra Einars H. Kvarans og Haralds Níelssonar. Aðrir, sem ntgerðir eiga í bók þessari eru skáldið og rithöfundurinn

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.