Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Side 63

Morgunn - 01.12.1978, Side 63
BÆKUR 157 öðrum að lesa hana. Gísli Ólafsson hefur leyst vel af hendi hið erfiða hlutverk að snúa þessari bók á íslenzku. En hún er afarfalleg i útgáfu Þjóðsögu, sem aldrei hikar við að leggja út í að birta á íslenzku bækur sem miklu móli skipta, þó ekki kunni að vera alltaf að vera að því gróðavegur í okkar fá- menna landi. Þessi fagra og merkilega bók hlýtur að vera hverjum hugsandi manni ánægjuefni. Reymond A. Moody, jr.: LfFIÐ EFTIR LÍFIÐ. Ólafur H. Einarsson íslenzkaði. Víkurútgáfan Reykjavík. Eitt sinn skal hver deyja. Þetta er ef til vill það eina, sem hægt er að segja um með fullri vissu að allir menn séu sam- mála um. — Fæstir hafa þó áhuga á að hugsa mikið um það. Þvert á móti, fólk vill helst ekki minnast á það. Má jafn- vel segja, að áhugi fólks á dauða annarra standi í öfugu hlut- falli við áhugann á eigin dauða. Kannski er það ekki nema mannlegt, þó það sé ef til vill ekki að sama skapi hyggilegt. Kristnin byggist beinlinis á því, að átt hafi sér stað upprisa eftir dauðann og var Páll sjálfur ekki ómyrkari í máli um þann viðburð en svo, að hann lýsti því yfir, að án hennar væri kristnin ónýt. Dauðinn er þannig hin nauðsynlega und- trstaða allrar kristni. Maður skyldi því ætla, að kirkjan upp- fræddi okkur eitthvað um þennan mikilvæga atburð, sem bíður okkar allra. En það er nú öðru nær. Á hann er að jafn- aði ekki minnst, nema við jarðarfarir og þá ræddur einna líkast því, sem hér sé um eitthvert sérstakt óhapp að ræða. En þó er þetta einmitt hin brennandi spurning á allra vörum. ftg veit ég hlýt að deyja. En hvernig er það? Hvað tekur við? Hvað sem þessum tveim spurningum líður, þá hefur það þó verið rannsakað á vísindalegan hátt, að meiri hluti fslend-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.