Morgunn


Morgunn - 01.12.1978, Side 85

Morgunn - 01.12.1978, Side 85
RADDIK I-ESENDA 179 tima og rúmi, og þá fyrst og fremst hvað átt er við með orð- inu takmarkaður? Svar: Ekkert verður um það fullyrt enn sem komið er, hvort alheimurinn sé takmarkaður í tíma eða rúmi. En sumar af þeim ímyndum (model), sem menn hafa gert sér af alheim- inum og grundvallað á stærðfræðilegum og eðlisfræðilegum lögmálum, hafa falið í sér þennan möguleika. Takmörkun í tima ber að skilja þannig, að alheimurinn hafi átt sér upp- haf og muni — ef til vill — eiga sér endi, þannig að efni og orka hætti að vera til, og þá um leið tíminn, því fæstir líta nú á dögum á timann sem sjálfstætt hugtak, óháð efnislegri viðmiðun. Vafasamt virðist að tala um að tíminn. liði, ef ekk- ert er til, sem nota mætti til að marka rás hans. Takmörkun alheimsins í rúmi, felur það i sér, að við get- um hugsanlega farið um allan alheiminn, þannig að við hefðum séð og talið sérhvern hluta hans og sérhvert rými. Sem hliðstæðu má nefna, að ferðamaður getur hugsanlega farið um allt yfirborð jarðar og skoðað hvern skika lands og sjávar, þannig að ekkert sé óskoðað, án þess þó að nokkurn tíma hafi verið komið að yztu brún eða takmörkum. Þegar um þrivítt rúm er að ræða, finnst mörgum erfitt að skilja, að það geti verið takmarkað. Þeir sem hugsa sem svo, að með því að ferðast eftir beinni línu, hljóti ávallt að vera mögu- legt að fara lengra og lengra út í geiminn, án takmarkana. Þetta er þó allt undir því komið, að eiginleikar „beinnar línu“ séu þeir, sem menn gera ráð fyrir ósjálfrátt með sjálfum sér. f takmörkuðum alheimi myndu jafnvel hinar beinustu línur liggja í eins konar hring, að sínum upphafspunkti, likt og „beinar linur“ eftir yfirborði jarðar eru raunverulega stór- hringar, sem liggja umhverfis jörðina. Það er því sama hvaða leið er valin i takmörkuðum alheimi, hún liggur aldrei út að neinum endimörkum, hvað þá út fyrir þau, því að þau fyrirfinnast ekki. 16. sp.: (Tvíþætt). Hve mörg ljósár eru til fjærstu stjama, sem hægt er að greina með berum augum? Hve mörg eru þau til fjærstu stjama, sem nú eru greindar í heztu sjónaukum?

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.