Íslenzk tunga - 01.01.1965, Síða 109
ÚR FÓRUM ORÐABÓKARINNAR V
107
sem bendir lil þess að hann hafi einhvern latínulærdóm hlotið; hafi
hann í skóla verið kemur Skálholtsskóli frekast til greina, en eins
mætti hann hafa notið einkakennslu, og væri þá líklegast að ein-
hverjir frændur hans hefðu kennt honum, en meðal þeirra voru
prestar lærðir í Skálholti. Bjarni og Stefán nota háðir orðið dóni í
svipaðri merkingu, um ómenntaða menn og einfalda, og kemur það
vel heim við þá notkun menntamanna sem Jón frá Grunnavík lýsir
og algengust var fram á 19. öld.
Hjá Guðmundi Bergþórssyni hefur orðið aftur á móti almennari
niðrandi merkingu, en hann var ekki skólagenginn, og notkun hans
á orðinu hendir til þess að það hafi þá þegar verið komið út fyrir
þröngan hring skólagenginna manna og um leið fengið víðari merk-
ingu.
Enn má henda á að Guðmundur Andrésson, sem gekk í Hólaskóla,
þekkir að vísu Corydon, notað sem skammaryrði, en hann notar
ekki orðið dóni í sömu merkingu; af því mætti ef til vill ætla að
þessi íslenzkun orðsins hafi ekki tíðkazt á Hólum á skólaárum hans.
Sama er að segja um samtímamann Guðmundar, sr. Jón Þórðarson
(1616—89), sem og mun hafa verið Hólamaður; shr. 8. nmgr. hér
á undan.
011 rök hníga þannig að því að Jón Grunnvíkingur hafi skýrt
uppruna orðsins rétt: að það sé dregið af Corydon og upprunnið í
Skálholtsskóla. Sé svo, hefur arfsögnin um uppruna orðsins varð-
veitzt fram á daga Páls Melsteðs í Bessastaðaskóla, eða í tvær aldir.
Sýnilegt er að orðið dóni hefur verið orðið nokkuð algengt á
dögum Jóns frá Grunnavík. Hann tilfærir samsetningarnar dónaleg-
ur, dónaskapur og sögnina að dónast og dónast áfram ‘hegða sér
durgslega, þjösnast áfram’. Þetta eru elztu dæmi um samsetningar og
afleiðingar af þessum stofni, en síðar verða þær fjölmargar. Á 19.
öld kemur upp gælumyndin dónsi (sbr. tilvitnunina úr Pilti og
stúlku hér að framan), en hún kemur fyrir nokkrum sinnum á síð-
ari helmingi aldarinnar. í lok 19. aldar hverfur hin þrönga merking
skólamanna úr orðinu dóni, og um leið verður almennari merkingin