Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1956, Síða 88

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1956, Síða 88
Tryggvi Gunnarsson 1835—1955. I. í haust eru liðin 120 ár frá fæðingu Tryggva Gunnarssonar. Hann var um 50 ára skeið einna nafn- kenndastur allra íslendinga, er samtimamenn hans voru, og enn, nær 40 árum eftir dauða hans, er nafn hans mörgum kunnugt. Þess er samt að vænta, að tekið sé allmjög að fyrnast yfir þau afrek, er á sinni tíð komu á hann frægðarorði. Þykir mér þvi við eiga að minnast hans stuttlega í Almanaki Þjóðvinafélags- ins í tilefni af stóraldarafmælinu. Ber margt til þess, en næst liggur að minnast á það, að Þjóðvinafélagið á honum meira að þakka en nokkrum manni öðrum. Hann var sem kúnnugt er einn fremsti stofnandi félagsins, en því næst forseti þess um 35 ára skeið og réð mestu um störf þess allan þann tima, ritstjóri Almanaksins og Dýravinarins. En þótt ekki hafi verið mjög á loft haldið ritstörfum Tryggva Gunnarssonar, ætla ég, að hann hafi beint og óbeint liaft meiri áhrif en margir nafnkenndari rithöfundar með greinum sínum í ritum þessum, er að vísu voru meir sniðnar til fræðslu, menntunar og menningar en tilþrifa i máli og stíl, og þó allvel úr garði gerðar einnig að þessu leyti. II. Tryggvi Gunnarsson fæddist 17. október 1835 að Laufási við Eyjafjörð. Foreldrar hans voru síra Gunnar Gunnarsson, prests í Laufási Hallgrímssonar, og kona hans, Jóhanna Gunnlaugsdóttir sýslumanns Briems á Grund í Eyjafirði. Hann réðst fermingar- vorið sitt, tæplega 15 ára gamall, til trésmiðanáms hjá móðurbróður sínum, Ólafi Briem á Grund, og lauk því námi vorið 1853. Það sama vor andaðist faðir hans, (86)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.