Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Page 67

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Page 67
GUÐMUNDUR G. HAGALÍN FIMMTUGUR 49 æviloka. Til minningar um draum sinn stofnar hún svo sjóð til að verðlauna ógiftar mæður, sem börn eiga eftir þrítugt. “Skilningstréð” er saga um fyrstu uppreisn unglings. Hann stelst út á fjörð um húslestur á sunnudegi og veiðir væna lúðu, fallegan fisk úr sjó. Sú lúða verður hans skilningstré — þótt dregið sé úr sjó. “Móðir barnanna” er um aðra uppreisn, uppreisn fátækrar verka- konu, sem hefir eignast tvö börn og hálf skammast sín fyrir, þótt henni þyki vænt um börnin og sjái vel fyr- ir þeim. Svo vill það til, að strákurinn, sonur hennar, lendir í slagsmál við syni útgerðarmanns, af því að þeir hafa kallað móður hans óþvegnum nöfnum. Leika þeir strák svo illa, að móðir hans getur ekki stilt sig að veita honum, — og áður en varir er hún búin að lúberja eigi aðeins strákana, heldur líka útgerðarmann inn sjálfan. Næsta dag er henni sagt upp vinnu 1 fiskvaski útgerðarmannsins og hún stendur ein uppi með sveitina fyrir dyrum. En þá kemur verkalýðs félagið henni til hjálpar, gerir verk- fsll til þess að hún sé tekin aftur í vinnuna. Þetta verður uppreist hennar: hún fer að hugsa eins og ^°na með virðingu fyrir sjálfri sér c2 börnunum. Og í sögulok segist hún með stolti vera “Móðir barn- anna — hans Sigga og hennar ^unnu minnar.” Þetta tilsvar hafði ^agalín annars eftir gamalli konu Vestan úr Dýrafirði, og gerði það að lQrnsteini sögu sinnar. ‘Tveir mektarbokkar” er skop- ^ynd af þrí-efldum þorpshöfðingja, kaupmanni og útgerðarmanni, sem einu sinni á ævinni mætir jafningja sínum á þorpsgötunni í líki mann- ýgs geithafurs — og af viðureign þeirra — sem endar með frægum sigri hins tvífætta bokka yfir skepn- unni. . Allar þessar sögur, nema fyrsta sagan, eru skopsögur, þótt oft fylgi gamninu meiri og minni alvara, enda eru þær allar skrifaðar meir í hinum eldri skopsagnastíl Haga- líns, fremur heldur en í hinum nýrri stíl Kristrúnar í Hamravík. Aftur á móti bregður Hamravíkur stílnum fremur fyrir í lengstu sög- unni “Kirkjuferð,” þótt eigi sé hann einráður þar. Þetta er ævisaga gam- allar kerlingar, sögð af manni, sem stundum veiðir söguna upp úr móð- ur sinni, stundum lætur móður sína segja sér hana eftir ömmu sinni, en þær Herborg kerling beykis og amman eiga að hafa alist upp sam- an og verið vel til vina alla ævi. Þessi þrefalda umgerð — sonur — móðir — amma — er nokkuð viða- mikil og flýtir ekki fyrir rás sögunn- ar, en hún gefur höfundi gott tæki- færi til að kynna þessar persónur af tali þeirra, enda tekur amman að minsta kosti virkan þátt í sögunni sem andstæða og ráðgjafi Herborg- ar. Þetta sögusnið neyðir líka höf- und til að halda sér ávalt innan við ramma þess, sem sagnamaður hans hefir heyrt sjálfur eða heyrt haft eftir öðrum. Annars er kerlingin hún Herborg gamla beykis engin hversdags-mann- eskja, heldur hreinlega einstæð og það eigi aðeins í bókum Hagalíns — þótt ein mannlýsing í Konungin- um á kálfsskinni minni dálítið á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.