Hugur - 01.06.2009, Side 24

Hugur - 01.06.2009, Side 24
22 Sigríður Þorgeirsdðttir tími þar til sú umræða fór af stað innan heimspekinnar. Franski heimspekingurinn Michéle Le Doeuff hefúr velt fyrir sér stöðu kvenna innan heimspekinnar, bæði fyrr á tímum og í samtímanum. „Sítt hár, stuttar hugmyndir“ I bók Le Doeuff Hið heimspekilega imyndarmál er kafli sem hún nefnir „Sítt hár, stuttar hugmyndir“ (Le Doeulf 1989:100-128). Upphafsspurning hennar er hvort eitthvað hafi í raun breyst til hins betra. Hún er þeirrar skoðunar að sem fyrr sé aðgengi kvenna að heimspeki takmarkaðra en karla. Það eru ekki bönn við lýði eins og fyrr á tímum, heldur óbeinar hindranir. Hún greinir milli banns og leyfis til að skýra mál sitt. Þeir klóku leyfa en hinir meðalgreindu banna. Nú á dögum búa konur við lúmskt kerfi hindrana. Lengst af þurfti að banna fæstum konum aðgang, þær höfðu flestar ekki forsendurnar vegna þess að þeim var meinaður aðgangur að menntun. Þó voru undantekningar á þessu. Hipparkía er dæmi um eina slíka, en hún fór að leggja stund á heimspeki fyrir tilstilli ástar á karlmanni. Þetta telur Le Doeuff vera dæmigert fyrir kvenheimspekinga fyrri tíma, en Hipp- arkía var lærimey Kratesar. Sama gildir um frægt samband Héloíse og Abelards, og einnig um heimspekilegt samband Elísabetar prinsessu og Descartes, þótt ekki hafi verið um ástarsamband að ræða milli þeirra. Heimspekilegar samræður þeirra voru erótískt samband í víðum skilningi. Þessir kvenheimspekingar losuðu sig að dómi Le Doeuff aldrei undan áhrifavaldi lærimeistara sinna og urðu sjálfstæðir hugsuðir.18 Heimspeki og erótík í víðum skilningi eru gamalt par. Le Doeuff fullyrðir að karlnemendur í heimspeki séu heldur ekki ónæmir fyrir erótík. Þeir „falli fyrir“ einhveijum kennara sem hefúr mikil áhrif á þá. Kennarar tæli nemendur heim- spekilega. Þeir velji sér karlnemendur sem þeir spegla sig í, móta í sinni mynd og reyna þannig að klóna sjálfa sig. Le Doeuff heldur því fram að karlnemendur vaxi upp úr sambandinu, andmæli, fari og finni sínar eigin leiðir. Descartes er gott dæmi um það. Hann lýsir því hvernig hann varð heimspekingur vegna ófúllnægju með allar fyrirliggjandi kenningar. Hann varð að finna sína eigin heimspekilegu undirstöðu. Le Doeuff bendir á hvernig andfemínismi í heimspeki sækir í sig veðrið um miðja 18. öld. Hún tekur dæmi af Rousseau sem eyddi miklu bleki í þá skoðun sína að konur hefðu ekkert að sækja í heimspeki, enda ætti uppeldi og menntun kynjanna að vera ólík og búa þau undir andstæð hlutverk. Hvers vegna færist meiri harka í andfemínisma á 18. öld? Tilgáta Le Doeuff er sú að staða heimspekinnar sé að veði. Vandinn liggur í heimspekinni sjálfri. Henni tekst ekki að framreiða þekkingu sem stenst eigin kröfúr um sannreynda þekkingu. Pascal orðaði þetta þannig í kafla 395 í Hugsunum að heimspekin sé ófær um sannanir (Pascal 1995). I því felst vanmáttur heimspekinnar. Ein leið til að beina athyglinni frá þessum 18 Þessi túlkun Le Doeuff er umdeild, og ég sjálf deili ekki skoðun hennar hvað þennan skilning varðar, en ekki gefst færi til að ræða það nánar hér.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.