Hugur - 01.06.2009, Side 66

Hugur - 01.06.2009, Side 66
64 Sigrún Svavarsdóttir Stundum er því haldið fram að slíkum hugrænum gjörðum fylgi hvöt til verka sem ekki á rætur að rekja til nokkurs meðfylgjandi viljatengds hugarástands. Hvötin beinist að því að gera það sem álitið er gott eða rétt og að sniðganga það sem álitið er slæmt eða rangt. Það að fella siðferðisdóm sé þá hvetjandi í sjálfu sér og geranda sé ekki með réttu eignaður dómurinn nema hann búi yfir viðeigandi hvöt. Köllum þessa kenningu sterka hvatainnhyggju \strong motivational internal- ism\ og notum veika hvatainnhyggju \iueak motivational internalism] yfir þá skoðun að siðferðisdómur sé ekki með réttu eignaður geranda nema hann búi yfir viðeigandi hvöt. Þá er ekki tekin afstaða til þess hvernig siðferðishvöt verður til - hvort siðferðisdómar séu hvetjandi í sjálfiim sér eða aðeins í samvinnu við önnur hugarferU - en sterkri hvatainnhyggju fylgt að máli um það að raunverulegur sið- ferðisdómur verði ekki felldur án viðeigandi hvatar. Takið eftir að hvorug kenn- ingin felur í sér að við breytum alltaf í samræmi við siðferðisdóma okkar. Þær fela aðeins í sér að við búum alltaf yfir hvöt, að minnsta kosti örlítilli, til að breyta í samræmi við siðferðisdóma okkar; aðrar hvatir geta samt sem áður orðið hinum siðferðilegu yfirsterkari og afvegaleitt okkur. Michael Stocker (1979) hefur eins og frægt er orðið veitt því athygli að í ástandi á borð við alvarlegt þunglyndi, veiklyndi eða aðra andans kvilla geti tengsl sið- ferðilegra dóma og hvatar rofhað, jafnvel hjá fólki sem finnur venjulega fyrir hvöt af siðferðisdómum. Samt telja margir siðfræðingar að hvatainnhyggja, hvort sem er í sterkri eða veikri mynd, sé rétt í anda þótt tengsl siðferðisdóma og siðferði- legrar hvatar geti í reynd rofnað. Annars staðar (Svavarsdóttir 1999:163-5) hef ég stungið upp á því að óumdeilanlegasta leiðin fyrir hvatainnhyggjumann til að sneiða hjá gagndæmum Stockers sé að gera undantekningu fyrir þá gerendur sem þjást af hvataröskunum sem hafa jafnframt á þá víðtækari áhrif. í sinni veikari mynd verður hvatainnhyggja þá að þeirri staðhæfingu að geranda verði ekki eign- aður siðferðisdómur nema hann þjáist annað hvort af hvataröskun sem hefur á hann víðtækari áhrif eða hann finni fyrir hvöt til að fylgja því eftir (eða mæla með því) sem hlýtur jákvæðan dóm og til að sniðganga (eða hindra) það sem hlýtur neikvæðan dóm. Fylgismenn sterkrar hvatainnhyggju bæta því við að hvötin stafi af dómnum einum saman. Hvataúthyggjumenn véfengja báðar staðhæfingarnar. Gildi þessa ágreinings fyrir deiluna milli siðferðilegra skynhyggjumanna og skynleysissinna ætti að blasa við. Skynleysishyggja væri ekki trúverðug án hvata- innhyggju. Séu siðferðisdómar eitthvað í h'kingu við tjáningu á tilfinningum eða því sem fólk kýs hljóta þeir að hafa eitthvert hvatningargildi. Eins er mun erfiðara að verja siðferðilega skynhyggju ef gert er ráð fyrir að hvatainnhyggja sé sönn, jafnvel þótt sumir skynhyggjumenn aðhyhist hvatainnhyggju. Almennt eru dómar í hinum venjulega skilningi ekki nauðsynlega bundnir hvöt. Ef siðferðisdómar eru dómar í venjulegum skilningi en þó nauðsynlega bundnir hvöt þá þurfum við skýringu á þessari einstöku stöðu þeirra með tilliti til hvatar. Þetta hefur ekki reynst auðvelt að útskýra. Niðurstaða deilu hvatainnhyggju- og hvataúthyggju- manna er því mikilvæg fyrir frumspekilega siðfræði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.