Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 5
Fo r m á 1 i.
í lögum nemendasambands Laugarvatnsskóla frá
1931 er svo ákveðið, að þing eða nemendamót skyldi
halda að Laugarvatni árið 1933, og það ár skyldi hið
fyrsta rit nemendasambandsins koma út.
Þetta er hvortveggja nýtt í sögu sambandsins og
skólans, nýr liður í félagslífi Laugvetninga
Ekki skal hér neinu spáð um það, hversu þessu nýja
riti verður tekið, en það þykir hlýða að minnast nokkr-
um orðum á það, tilgang þess og framtíð.
Þegar nemendasambandið var stofnað, var ákveðið,
að ritið skyldi koma út aðeins þingárið, þriðja eða
fimmta hvert ár, eftir samkomulagi. Þá var í lögum
sambandsins gengið út frá því, að félagar greiddu kr.
10,00 sem æfitillag. Þótti þá sýnt að fjárhagur sam-
bandsins myndi ekki verða svo sterkur, að það gæti
gefið út og sent félögum ritið árlega. Eins og kunnugt
er, hefir þessu ákvæði verið breytt í samræmi við hér-
aðsskólalögin, þar með var skapaður fjárhagslegur
grundvöllur til þess að gefa ritið út árlega, eða að
minnsta kosti miklu oftar en í fyrstu var ráð fyrir gert.
Það, sem sérstaklega vakti fyrir stofnendum nem-
endasambandsins, var það, að mynda félagsskap milli
helztu áhugamanna skólans meðal nemenda, sem hefði
það sérstaklega að markmiði að viðhalda kynningu
nemenda áfram eftir að þeir eru farnir héðan úr skói-
ar.um.
En það er hætt við því, að svo fari með nemenda-
sambandið, eins og önnur félagssamtök, að áhuginn
l*