Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 22
20
Þetta tilboð er dagsett 13. janúar 1923. Síðar, þ. 13.
janúar 1925 endurtaka Tungnamenn loforð sitt um
Haukadal og bæta því nú við, að hreppurinn lofi 20
þúsund krónum ef skólinn yrði settur í Haukadal eða
annarstaðar í Biskupstungum, ef það þætti heppilegra.
Einnig lofa þeir að leggja fram kr. 6000,00 til stofn-
unar skóla, hvar sem hann yrði reistur.
2. Þá kom tilboð frá hreppsnefnd Laugardalshrepps,
dagsett 27. janúar 1924. Lofar hreppurinn að leggja
fram kr. 10.000,00 ef skólinn yrði reistur á Laugar-
vatni í Laugardal. Síðar bættu þeir við loforðum um
flutning á efni til skólans, sem nema myndi kr. 4000,00.
3. Hrunamannahreppur lofar að gefa Högnastaði til
skólaseturs. Var sú jörð metin til verðs kr. 5500,00.
Var það skilyrði sett, að skólinn yrði reistur þar. En
skilyrðislaust lofar hreppurinn kr. 9000,00 og auk þess
lofar hann að flytja allt steinlím kostnaðarlaust til
skólans, verði hann reistur að Hveraheiði. Einnig lof-
aði ungmennafélagið í hreppnum kr. 5000,00, sem
greiða átti með jöfnu millibili í 5 ár.
Af fé því, sem lofað var óstaðbundið, var búið að
leggja kr. 3400,00 inn í sparisjóðinn „Gullfoss“. Getur
sr. Kjartan Helgason þess 20. janúar 1926, að þessa
innstæðu muni sparisjóðurinn greiða þegar á þurfti að
halda, með örstuttum fyrirvara.
4. Þá bauð Landsmannahreppur í Rangárvallasýslu
fram 20,000 kr. tillag til skólans, ef hann yrði reistur
á Galtalæk í Landsmannahreppi. Einnig lofaði eigandi
og ábúandi jarðarinnar, Finnbogi Kristófersson, ókeyp-
is lóð undir og umhverfis skólann, ásamt vatnsorku
til Ijósa og annara afnota úr fossi, sem þar er rétt hjá.
Byggingarefni, sem til væri í landareigninni, var og
heimilt endurgjaldslaust.
Ekki þykir ástæða til að fjölyrða um önnur tilboð,
sem nefndinni bárust. — Þessi voru helzt, auk margra
annara: Reykir í Ölvesi, Ólafsvellir á Skeiðum, Urríða-