Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Síða 21
19
Páll Stefánsson, Ásólfsstöðum, rs. Ólafur Sæmundsson,
Ilraungerði og sr. Eiríkur Þ. Stefánsson, Torfastöðum.
Á þessum fundi kom fram tilboð um sölu á húsi
Landsbankaútibúsins á Selfossi til skólahalds. Því boði
hafnaði sýslunefndin með 13 atkv. gegn 1.
Nefndin lagði fram svolátandi tillögur í málinu, sem
samþykktar voru i einu hljóði:
1. Að sýslunefndin kjósi menn til að halda málinu
áfram, rannsaka skólastaði og að því loknu gangast
fyrir fundarhöldum í hverjum hreppi, til þess að vita
um, hvers stuðnings sé að vænta.
2. Að nefndin sendi Alþingi í vetur beiðni um ríkis-
styrk til þess að koma upp skólahúsi og að ríkið taki
að sér rekstur skólans.
Þessir voru kosnir í nefndina: Kjartan prófastur
Helgason, Hruna, Páll bóndi Stefánsson, Ásólfsstöðum,
Kolbeinn hreppsstjóri Guðmundsson, Úlfljótsvatni.
Skyldi nú nefnd þessi taka málið upp og koma því
í höfn. Ilún átti að safna loforðafénu saman, knýja á
Alþingi og ríkisstjórn um fjárstyrk og velja skólastað.
Yfirleitt átti hún að gera allt, sem þurfti til þess að
leiða þetta áhugamál til farsælla lykta.
En hér sannast sem oftar, að sá á kvölina, sem á
völina. Fyrir lágu nokkur tilboð um skólasetur, en nú
drifu tilboðin hvaðanæfa að úr sýslunum, svo að varla
verða talin. Lá nú við að tilboð kæmu úr öllum sveit-
um Árnessýslu um skólastað.
Skal hér getið nokkurra þeirra tilboða, sem fram
komu.
1. Biskupstungnahreppur lofar að gefa til skólaseturs
hið forna höfuðból Haukadal, ásamt Iiaukadalskoti með
öllum húsum og kúgildum, sem jörðunum fylgdu. Auk
þess lofar hreppurinn að sjá um flutning á öllu að-
keyptu byggingarefni til skólans í Haukadal frá enda
flutningsbrautarinnar án endurgjalds eða annara skil-
yrða.
2*