Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Síða 100
98
sem bíða okkar og þess félagsskapar, sem við höfum
myndað.
Við verðum að skilja það, að við höfum stofnað fé-
lag, sem ber skylda til þess að inna af hendi hið hag-
nýta starf alvörumannsins um leið og það veitir hinni
glaðværu æsku svaladrykk af lindum lífsgleðinnar.
Við verðum að skilja það, að samband okkar er fé-
lagsheild sem standa verður óskipt til sóknar og varnar
um heill og frelsi Laugarvatnsskólans, jafnt inn á við
sem út á við.
Flest allir skólar í okkar þjóðfélagi hafa það frarm
yfir héraðsskólana, að þeir veita mönnum réttindi til
vissra starfa eða stöðu í þjóðfélaginu. Af þessu leiðir,
að um alla þessa skóla myndast hópar manna, sem
eiga persónulegra hagsmuna að gæta í sambandi við
skóla sinn, og um ýmsa þeirra skapast svo stéttafélög,
sem halda uppi kynningu nemendanna og knýja þá til
samstarfs og samvinnu um heill og framtíð skólanna.
En héraðsskólarnir hafa ekki hlotið þessa auðveldu
aðstöðu til félagsmyndunar, sem sérfræðiskólarnir,
heldur hefir lyftistöng þeirra ætíð verið áhugi og
fórnfýsi ýmissa óeigingjarnra og þjóðhollra manna,
sem skildu það, að ágæti og þroski einstaklingsins var
heill þjóðfélagsheildarinnar, og undirstaðan að hverju
því ríki, sem byggt er á lýðræðisgrundvelli.
En enginn mun þó betur skilja nauðsyn og ágæti al-
þýðuskólanna en þeir, sem notið hafa fróðleiks þeirra
og þess undirbúnings, er þeir veita undir hina marg-
háttuðu lífsbaráttu.
' Þeim ber því öllum mönnum fremur að fylkja sér
undir merki þeirra manna, sem framsýnastir hafa ver-
ið og bezt hafa unnið að því að alþýðunni mætti veit-
ast andlegt sjálfstæði og þar með auknir möguleikar
til betra lífs.
Og verkefnin bíða alstaðar, — eftir starfandi hönd
og huga.