Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Page 38
36
unin var að reyna ennþá einu sinni að fá þá til að
byg-gja samskóla með Árnesingum.
Báðar nefndirnar og hinir þrír áðurnefndu alþingis-
menn, komu á fund snemma dags þ. 21. s. m. Var þá
búizt við að svar yrði komið og lítið farið að ræða mál-
ið þar. Var þá augljóst að ekki þýddi að vænta svars
þá strax og því ákveðið að fresta fundi til kl. 2 e. h.
s. d. Ekkert svar var enn komið kl. 2 og bað sendi-
nefndin enn um l'rest til kl. 7 um kvöldið. Féllst bygg-
ingarnefnd á það.
Komu nefndirnar enn saman kl. 7 ásamt þingmönn-
unum, sem áður getur.
Kom þá svar frá sýslumanni Rangæinga á þá leið,
að búið væri að samþykkja með 8 atkv. gegn 2 að
leggja málið undir úrskurð alþingiskjósenda í sýslunni
um leið og kosningar færu fram til Alþingis þú um
sumarið. Þess skal getið að þeir tveir, sem greiddu at-
kvæði á móti voru hlynntir samskóla og sættu sig vel
við Laugarvatn sem skólasetur. Skyldi greiða atkv. um
þetta þrennt: Vill Rangárvallasýsla samskóla með Ár-
nesingum, vill hún sérskóla fyrir sig-, eða vill hún eng-
an skóla?
Þegar þetta svar kom, leizt byggingarnefndinni ekki
á að draga sig eítir Rangæingum, þar sem áður hafði
verið greitt atkvæði um málið á sama grundvelli þar í
sýslu og meiri hlutinn þá engan skóla viljað.
Fór sendinefndin enn fram á það, að byggingarnefnd
frestaði störfum og færi einnig fram á það við oddvita
sýslunefndar Árnessýslu, að hann kallaði saman auka-
sýslufund þar til þess að leita samþykkis um sams-
konar atkvæðagreiðslu í Árnessýslu eins og búið var
að ákveða í Rangárvallasýslu um málið.
Byggingarnefnd leit svo á, að þetta væri fyrir utan
hennar verkahring og svaraði þessu algjörlega neitandi.
Var þar með lokið öllum samningatilraunum nefndanna.
Þess skal getið, að allir 3 þingmennirnir voru nefnd-