Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Page 163
161
því, sem við verður komið. Skuggamyndir eru sýndar
samhliða, þar sem þær eiga við, efni og innihaldi til
nánari skýringar. Flesta slíka fyrirlestra hefir Ragnar
Ásgeirsson flutt, enda er meginkennsla hans við skól-
ann í því fólgin. Efni fyrirlestra hans var einkum:
listir og listamenn. Af innanhéraðsmönnum fluttu
þessir menn erindi: Séra Guðmundur Einarsson, Sig-
urmundur Sigurðsson læknir, Böðvar Magnússon
hreppstjóri, Laugarvatni, Ráll Guðmundsson á Hjálms-
stöðum.
Utanhéraðsmenn, sem hafa verið hér á ferð: Jónas
Jónsson skólastjóri, Pálmi Hannesson rektor, séra Jón
Guðnason á Prestsbakka, Páll Jónsson frá Fremsta-
felli. Hann dvaldi hér nokkra daga til þess að kynnast
starfsháttum skólans og í sama skyni dvöldu þeir
skamma hríð Helgi Tryggvason kennari á Reykjum og
Þorgeir Jakobsson frá Haga í Reykjadal.
Félagslíf.
Skólafélagið starfaði með líkum hætti og áður. Hélt
það fjöruga málfundi, gaf út ritað blað, þar sem birt-
ar voru ritgjörðir allskonar efnis og nokkuð af kvæð-
um. Ennfremur hélt það dagbók.
Formaður skólafélagsins árið 1931—32 var Helgi
Geirsson, en ritstjóri blaðsins það ár var Karólína S.
Einarsdóttir. Formaður þess á s. 1. vetri var Guð-
bjarni Þorvaldsson, en ritstjóri Þói’ður Magnússon.
Taflfélag var einnig innan skólans, formaður þess
var Sigríður Lárusdóttir.
Meðal þeirra, er heimsóttu skólafélagið, voru þeir
Helgi Scheving menntaskólanemandi og Þórarinn Þór-
arinsson nemandi samvinnuskólans. Tilgangur þeirra
með ferð sinni hingað var að hvetja til bindindisstarf-
semi á þeim grundvelli, að skólafélagið gengi í bind-
indissamband skólanna. Nokkru síðar tóku sig saman
um 100 nemendur og gengu í sambandið. Meðal bréfa,
11