Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Qupperneq 42
40
verið ákveðnastir skólamenn ásamt Biskupstungna-
mönnum og Laugdælingum.
Var nú mikið undir því komið, hvernig þeir litu á
málið, því fremur sem nú var sýnt, að lítið myndi vera
á loforðum hinna hreppanna að byggja úr þessu, eir.s
og síðar varð raunin á.
Fundur var síðan haldinn að Minni-Borg 4. maí. Á
fundinum var Kolbeinn og undirritaður, ásamt 30
bændum úr hreppnum. Þar voru þeir og af hálfu mót-
mælenda skólans, Ólafur Sigurðsson, Kaldaðarnesi,
Árni Jónsson, Alviðru og Kristgeir Jónsson.
Á fundi þessum kom það greinilega í ljós, að 5
hreppar, Bis’Kupstungnahreppur, Grímsneshreppur,
Grafningshreppur, Þingvallahreppur og Laugardals-
hreppur höfðu allir féð handbært til byggingarinnar
og stóðu fast saman um það að halda málinu áfram.
Skoraði fundurinn að lokum á byggingarnefndina að
halda áfram undirbúningi, þar til nefndin væri stöðvuð
með valdboði. Margir þarna lýstu megnri óánægju sinni
yfir aðförum þeim, sem beitt hafði verið í málinu í
niðursýslunni. Kom það þá og í ljós, að þótt hinir
hrepparnir allir gengju frá loforðum sínum, myndi ekki
við það tapast meira en 20 þús. kr. og væri því kleift
að halda áfram bið bygginguna, en þó í smærri stíl en
hugsað var í upphafi. Þeir tveir úr byggingarnefnd-
inni, sem á fundinum voru, tóku þetta til greina og
fóru strax, daginn eftir, til Reykjavíkur, staðráðnir í
því að slaka ekki til, fyr en í fulla hnefana. Þriðja
nefndarmanninum var sent skeyti, en gat ekki komið.
Átti meirihluti nefndarinnar þá tal við húsameistara
ríkisins, Guðjón Samúelsson, sýslumann Magnús Torfa-
son og þá menn aðra, sem málið var skylt.
Alþingi hafði þá leyst sr. Kjartan Helgason frá em-
bætti með fullum launum, ef hann tæki að sér skóla-
stjórnina við hinn væntanlega héraðsskóla.
Sundrung sú, sem risið hafði upp í Árnessýslu um