Helgafell - 01.05.1953, Blaðsíða 144
Verðlaunasamkeppni Helgafells
um myndlist og bókmenntir
í tilefni af 60 ára afmæli Ásmundar Sveinssonar, myndhöggv-
ara, efnir tímaritið Helgafell til samkeppni um myndlistarverk,
teikningu, málverk eða höggmynd, sem gert er með hliðsjón af
einhverju þjóðkunnu kvæði eftir 20. aldar skáld. Til samkeppn-
innar er sérstaklega stofnað með tilliti til ungs myndlistarfólks,
og ekki hvað sízt er þess vænzt, að hún megi örva nemendur
myndlistarskólanna til frjórrar sköpunar á eigin spýtur.
Verðlaun verða veitt fvrir 3 beztu verkin, 500 kr. fyrir hvert.
Auk þess áskilur tímaritið sér birtingarrétt, gegn venjulegum
greiðslum, og leyfi til þess að sýna án endurgjalds öll þau verk,
er berast kunna og ástæða þykir til að leyfa almenningi að
kynnast.
I dómnefnd eru Björn Th. Björnsson, listfræðingur, og yfir-
kennarar myndlistarskólanna, Sigurður Sigurðsson og Þorvaldur
Skúlason, en verðlaunin verða afhent af Ásmundi Sveinssyni á
sýningu 12. okt. n.k., enda hafi hann fallizt á úrskurð dómnefnd-
arinnar. Verkin afhendist Bimi Th. Björnssyni á skrifstofu Helga-
fells, Veghúsastíg 7, dagana 10.—15. sept.
o