Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 27

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 27
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNISFRÆÐ sem svo að þessi ákveðna stökkbreyting eigi ekki marktækan þátt í tilurð snemmkominnar offitu hjá íslendingum. Ristow og félagar lýstu nýlega stökkbreytingunni hjá fjórum Þjóðverjum með alvarlega offitu (líkamsþyngdarstuðul 37,9-47,3) (42). Ekki fannst fylgni milli stökkbreytingarinnar og sykursýki eða blóðfitubrenglana og var jafnvel talið að um nýja undirtegund offitu væri að ræða. í rannsókn Ristows og félaga var erfðaefni 121 offitusjúklings og 237 einstaklinga af eðlilegri þyngd athugað. Stökkbreytingin var fyrir hendi í um 3% þeirra offitusjúklinga sem skoðaðir voru en í um 1% allra þátttakenda (42). Ekki er vitað hve algeng þessi stökkbreyting í raun og veru er eða hvort hana er að finna annars staðar í heiminum. Vel gæti hugsast að hún sé aðeins til á afmörkuðum svæðum í Evrópu en hafi ekki komið fram hér á landi. f rannsókn Ristows og félaga var ekki tekið tillit til hvort offitan hefði verið vandamál allt frá barnæsku. Líklegt verður að teljast að offita sem fram kemur á barnsaldri eigi fremur rætur sínar að rekja til erfðaþátta en offita sem fram kemur á fullorðinsárum (43). Því má ætla að gallar á þessu ákveðna svæði PPARy2 leiki enn síður hlutverk í erfðri offitu meðal íslendinga. Ef til vill má telja til annmarka að jákvætt viðmið við Hinc II meltingu vantaði. Betra hefði verið að sjá í raun og veru hvemig stökkbreyttur einstaklingur lítur út og þá hvort meltingin hafi í öllum tilvikum heppnast. Þó verður að minnast þess að öll sýni voru skoðuð á fleiri vegu til leitar að stökkbreytingum og eflaust hefðu komið fram jákvæð svör þar ef stökkbreyting hefði verið fyrir hendi. Nokkuð bar á falsk-jákvæðum niðurstöðum í niðurstöðum EMD<TM). Sem skimunaraðferð fyrir stökkbreytingum er EMD<TM) þekkt fyrir mikið næmi en heldur lítið sértæki. í nokkrum tilfellum kom fram þó nokkur ósértæk mögnun við PCR. Hugsanlegt er að hún hafi verið meiri í einstökum sýnum og á einhvem hátt átt þátt í þessum svörunum. Með hliðsjón af þessu voru umræddir erfðaefnisbútar raðgreindir til frekari greiningar. Tengsl PPARy2 og offitu eru sterk. Sú stökkbreytingaleit sem var gerð í þessari rannsókn beindist aðeins að afar litlum hluta gens PPARy2. Það er því verðugt verkefni að skoða fleiri svæði þess með þetta ákveðna vandamál í huga. Yen og félagar fundu nýlega erfðabreytileika þar sem alanín kemur í stað prólíns í stöðu 12 PPARy2 (44). Ekki er vitað hvaða hlutverki þetta svæði PPARy2 gegnir(44), en Deeb og félögum tókst að sýna fram á tengsl þessa erfðabreytileika við: minni virkni viðtækisins, lægri líkamsþyngdarstuðul og aukið insúlínnæmi(45). I þessari rannsókn var leitað að stökkbreytingunni Proll5Gln og öðram basabreytingum á svipuðu svæði PPARy2. Skoðaðir vora 43 einstaklingar sem hafa átt við offituvandamál að stríða frá bamæsku. Ekki var að finna neitt óeðlilegt í erfðaefni þessara Mynd 5. Hlutverk PPARyl (peroxisome proliferator activated receptory2) og stjórnun með fosfórýleringu og bindiefnum. Sykursýkilyfjaflokkurinn thiazolidinediones, fitusýrur, eicosanoíðar ogfleiri efni virkja PPARy2 til þess að ýta undir sérhœftngu fitufrumna og auka insúlínnœmi. Insúlín og aðrir vaxtarþœttir hvetja MAP kínasa tilþess að tengja fosfathóp við serín íslöðu 114 PPARy2. Við það minnkar hæfileiki hans til þess að örva sérhœfmgu fitufrumna og insúlínnæmi minnkar. sjúklinga á þessu afmarkaða svæði PPARy2. Því má álykta að breytileiki á umræddu svæði PPARy2 sé ekki orsakavaldur offitu hjá íslenskum börnum. Þakkir Sérstakar þakkir fær starfsfólk rannsóknadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur og aðstoðar- og deildar- læknar barnadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur fyrir aðstoð við sýnatökur. Heimildir 1. Rosenbaum M, Leibel RL, Hirsch J. Obesity. N Engl J Med 1997; 337: 396-407. 2. Kuczmarski RJ, Flegal KM, Campell SM, Johnson CL. Increasing prevalence of overweight among US adults: the National Healt and Nutrition Examination Surveys, 1960 to 1991. JAMA 1994; 272: 205-11. 3. McGinnis JM, Foege WH. Actual causes of death in the United States. JAMA 1993; 270: 2207-12. 4. Bouchard C, ed. Genetics of obesity Boca Rohan, ELA. Washington USA: CRC Press; 1994. 5. Willett WC, Dietz WH, Colditz GA. Guidelines for healthy weight. N Engl J Med 1999; 341: 427-34. 6. Van Itallie TB. Health implications of overweight and obesity in the United States. Ann Intern Med 1985; 103: 983-8. 7. Must A, Jacquis PF, Dalla GE, Bajerna CJ, Dietz WA. Long term morbitity and mortality of overweight adolescents: a follow up of the Harvard Growth study of 1922 to 1935. N Engl J Med 1992; 327:1350-5. 8. Danfoth E Jr, Burger A. The role of thyroid hormones in the control of energy expenditure. Clin Endocrinol Metab 1984; 13:581-95. 9. Weigle DS, Sande KJ, Iverius PH, Monsen ER, Brunzell JD. Weight loss leads to a marked decrease in nonresting energy expenditure in ambulatory human subjects. Metabolism 1988; 37: 930-6. 10. Leibel RL, Hirsch J. Diminished energy requirements in reduced-obese patients. Metabolism 1984; 33:164-70. 11. Wadden TA. Treatment of obesity by moderate and severe caloric restriction. results of clinical research trials. Ann Intern Med 1993; 229:188-93. 12. Rosenbaum M, Leibel RL. Pathophysiology of childhood Læknablaðið 2001/87 123
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.