Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 74
S M A S J A I N
Frá stjórn Læknafélags Reykjavíkur
Tóbaksauglýsingar
á biöstofum
Bandarísku læknasamtökin (AMA) beindu
fyrir liðlega áratug þeim tilmælum til
bandarískra heimilislækna að losa sig við
blöð og tímarit sem auglýsa tóbak af
læknastofum og heilsugæslustöðvum. Könn-
un sem gerð var í Boston árið 1988 sýndi að
einungis 11% biðstofa þar voru alveg lausar
við slík tímarit og ekki lýstu nema 25% lækna
áhuga á að útrýma þess háttar efni af bið-
stofunum. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli heildar-
samtaka lækna virðist sem ekki hafi allir
tekið við sér á þessu sviði. Árið 1999 var gerð
símakönnun meðal bamalækna í Rochester í
New York fylki. Niðurstaðan olli von-
brigðum. Einungis 8% læknanna sem spurðir
voru sneiddu algerlega hjá blöðum sem
innihéldu tóbaksauglýsingar. Að vísu voru
45% læknanna ekki áskrifendur að neinum
blöðum sem innihéldu slíkar auglýsingar en
meirihluti þeirra lét blöð sem þeir fengu send
ókeypis liggja frammi á stofnum sínum og
allmörg þeirra innihéldu tóbaksauglýsingar.
Tuttugu og einn af hundraði lýsti áhuga á að
losa sig alveg við tóbaksauglýsingar af bið-
stofunum en hafði ekki látið verða af því.
73% læknanna voru með áróðursbæklinga
eða veggspjöld á biðstofunum. Ætla má að
það gæti borið árangur að dreifa lista yfir
tímarit sem ekki birta tóbaksauglýsingar til
lækna, því 69% úrtaksins sögðust hafa áhuga
á að fá slíkan lista sendan.
JAMA Vol. 285/ No. 1. 3. janúar 2001
í biðröðinni hjá sáttasemjara
Eftir að hinni löngu samningalotu við
kennara lauk hjá sáttasemjara snemma í
janúar kom röðin að öðrum hópum sem eru
með lausa samninga. Einn af þeim hópum
sem eiga eftir að semja eru sérfræðingar á
sjúkrahúsum. Læknablaðið hafði samband
við Ingunni Vilhjálmsdóttur, formann samn-
inganefndar sjúkrahúslækna, um miðjan
janúarmánuð og þá hafði nefndinni ekki
verið sagt hvenær röðin kæmi að sjúkra-
húslæknum. Biðtíminn hefur verið nýttur vel
því verið er að safna efni og undirbúa
kynningarfundi vegna mikilla breytinga sem
eru framundan á launakerfi sjúkrahúslækna
og uppbyggingu samninga þeirra. Á næstu
vikum er stefnt að því að halda slíka fundi og
verða þeir kynntir vel þegar að þeim kemur.
Samningamál LR/TR
Á fundi með samninganefnd Trygginga-
stofnunar ríkisins þann 9. janúar gekk
samninganefnd LR, undir forystu Þórðar
Sverrissonar augnlæknis, frá samningum
fyrir hönd sjálfstætt starfandi lækna. Megin-
innihald samkomulagsins er:
• Einingarverð hækkar í kr. 180 frá og með
1. janúar 2001.
• Einingafjöldi fyrir klínískar greinar verður
12.000.000 á árinu 2001.
• Gjaldliðir nokkurra sérgreina verða endur-
skoðaðir og samninganefnd LR mun móta
persónubundnar afsláttarreglur, sem eiga
að tryggja að útgjöld TR verði innan
fjárlaga. Við mótun nýrra afsláttarreglna
mun stjórn LR hafa samráð við sérgreina-
félögin og boðað verður til félagsfundar
um málið.
Tölvuföng
Til að bæta og auðvelda samskipti og tengsl
félagsmanna er æskilegt að hafa tölvuföng
sem flestra félaga. Þau verða einungis notuð
á vegum læknasamtakanna.
Sendið svar með tölvupósti þar sem fram
kemur nafn, símanúmer og staðsetning á
skrifstofu læknafélaganna gunna@iccmed.is
Fræðslufundir
Læknafélags Reykjavíkur
fyrir almenning
Fundartími: Kl. 20:30
Staðsetning: Húsnæði læknasamtakanna á 5. hæð,
Hlíðasmára 8 í Kópavogi
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir
Fimmtudagur 22. febrúar: Vísindalegar nýjungar
í baráttunni við brjóstakrabbamein
Valgarður Egilsson sérfræðingur í meinafræði
Míðvikudagur 28. febrúar: Atvinnusjúkdómar.
Strit - slit og sjúkdómar
Kristinn Tómasson yfirlæknir
hjá Vinnueftirliti ríkisins
170 Læknablaðið 2001/87
i