Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2001, Qupperneq 81

Læknablaðið - 15.02.2001, Qupperneq 81
UMRÆÐA & FRETTIR / IÐORÐAPISTILL 130 Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@landspitali.is Dægradvöl V er tekin upp úr Lækna- blaðinu. Spurt er um höfund og útgáfuár. Dægradvöl V „Af þessu verður ljóst, að þegar læknir hefur lokið sérnámi, hefur hann nær helming ævi sinnar mestmegnis fengizt við erlent ritmál og fimmta hluta ævinnar haft lítil skipti af íslenzkri tungu, heldur hugsað, talað og ritað á erlendu máli.“ „Liggur því nærri að ætla, að íslenzk tunga sé í nokkru meiri hættu stödd af völdum lækna en annara mennta- manna, einnig má gera ráð fyrir, að þessi hætta hljóti að vaxa, eftir því sem læknar leggja meiri rækt við fræðigrein sína.“ Bioavailability ÍSLENSK MÁLSTÖð FRAMSENDI TÖLVUSKEYTI SEM þangað hafði borist. Spurt var um hugtakið bioavailability og íslenskun þess. íðorðasafn lækna veitti ekki úrlausn. Frá enska nafnorðinu bioavailability er aðeins vísað í physiological availability. en þar er heldur ekki íslenskt heiti að finna, aðeins spurningarmerki (?). Fyrirspyrjandi hafði sjálfur nokkrar lausnir á takteinum, aðgengi, líffrœðilegt aðgengi, lífaðgengi, lífgengi og ígengi, en líkaði misvel og vildi fá umræðu um þær. Orðhlutaskýringar gefa til kynna að fyrsti hlutinn bio- merki líf- eða líffrœðilegur. Ensk- íslensk orðabók Arnar og Örlygs gefur þýðingar á availability: fáanleiki, það að vera fyrir hendi, tiltœkileiki, og Ensk-íslensk tölvuorðabók Máls og menningar einnig: auðfáanleiki. Hin mikla alfræðiorðabók Websters rekur uppruna til latnesku sagnarinnar valeo (valere) sem getur haft ýmsar merkingar: koma að gagni, vera einhvers virði, vera sterkur, hafa áhrif vera virkur, vera hraustur, vera fær og að sigra. Enska lýsingarorðið available merkir: til reiðu, fyrir hendi, laus, fáanlegur eða tiltækur. Auðvelt er því að setja saman þá orðskýringu að bioavailability tákni það ástand eða þann eiginleika að vera líffræðilega tiltækur eða fyrir hendi. Orðskýringarnar gefa hins vegar ekki til kynna hvaða hugtak liggur að baki. Leit í læknisfræðiorðabókum leiðir í ljós að heitið bioavailability er notað um það magn eða hlutfall lyfs eða efnis sem tiltækt verður á verkunarstað, og er þannig markvef (target tissue) eða markfrumum (target cells) lífeðlisfræðilega (andstætt við efnafræðilega) til reiðu. Oft er þó eingöngu verið að vísa í það hundraðshlutfall af gefnum lyfjaskammti sem kemst inn í blóðið og berst með blóðrás til vefja. Spyrja má þá hvort forskeytið bio- sé nauðsynlegt í hinu erlenda heiti? Er ekki nóg að tala um availabilty? Væri ekki heppilegra og nákvæmara að nota orðin blood availability, tissue availability eða cellular availability um það af lyfinu sem er til reiðu á viðkomandi stað? Aðgengi Nafnorðið aðgengi finnst ekki í Islenskri orðabók Máls og menningar frá 1992, en birtist í tölvuorða- bókinni frá 1999 og í Orðabanka íslenskrar málstöðvar sem þýðing á accessibility. Leit í ritmálsskrá Orðabókar Háskólans gaf til kynna að orðið hefði komið fram á síðari hluta tuttugustu aldarinnar og fyrst verið notað um aðgengi fatlaðra að byggingum. Litlu eldra er orðið aðgengileiki. Lýsingarorðið aðgengilegur er mun eldra, eða frá miðri nítjándu öld, og má nota um það sem gott er að komast að. Undirritaður fékk að bragði þá hugmynd að viss endaskipti hefðu orðið á hlutunum þegar aðgengi var valið í lyfja- og læknisfræðilegu sam- hengi sem þýðing á availability. Samkvæmt upp- runalegu merkingunni ætti aðgengi lyfs að tákna hversu vel (eða illa) lyfið kemst inn í líkamann eða tiltekna vefi, en ekki hversu mikið af lyfinu er til reiðu. Aðgengi er lipurt orð og sér undirritaður ekki ástæðu til að amast við því. Pað er komið í notkun og hefur eignast formlegan sess í lyfjalýsingum sem undirfyrirsögn í köflum um Ivfjahvörf. Vera má að þetta heiti geti haft víðari merkingu en að var stefnt, en það misskilst varla í þessu samhengi. Hin heitin lífaðgengi og lífgengi eru síst gegnsærri. Vera má þó að heitið ígengi geti orðið til skilningsauka. Þannig mætti búa til heitið blóð- ígengi eða vefjaígengi, og jafnvel blóðgengi. Öll eru þau styttri og liprari en bioavailability, sem er átta atkvæði. Hugmyndir lesenda eru vel þegnar. Procedure Snemma á síðasta ári barst fyrirspurn frá Shreekrishna Datye, skurðlækni á FSA, um íslenskt heiti á procedure. íðorðasafn lækna tilgreinir tvö heiti, aðferð, lag, og Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs gefur þrjár merkingar, 1. aðferð, framgangur, framgangsmáti. 2. réttarfar. 3. viðteknir starfs- hœttir, viðskiptahœttir. Ekkert af þessu virtist duga fýrir það sem Shree hafði í huga. Hann var að leita að íslensku heiti til að tákna mismunandi aðgerðir (procedures) sem gerðar væru við sömu skurðaðgerð (operation). Þarna virtist um að ræða flokkunarheiti á skurðstofuverkum, fremur en lýsandi aðgerðar- heiti, því ekki virtist skipta máli hvort aðgerðirnar væru gerðar með einum skurði eða fleirum. Undir- ritaður leitaði mikið í tiltækum orðabókum, þar á meðal Samheitaorðabókinni, en fann ekki lausn sem líkaði og hefur síðan enga hugljómun fengið. Hafa aðrir læknar fundið lausn fyrir Shree? Dægradvölin Dægradvölin í síðasta pistli fjallaði um klæðnað manna og var úr Heilsufræði, Alþýðubók og skóla- bók, eftir Steingrím Matthíasson, héraðslækni á Akureyri. Bókin var gefin út árið 1914 og fylgdi höfundur henni úr hlaði með þessum orðum: „Það er ósk mín og von, að bók mín opni augu margra landa minna fyrir verðmæti heilsunnar og megi verða alþýðu manna til fróðleiks og jafnvel skemmtunar." Læknablaðið 2001/87 177
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.