Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 40
40 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
nefna atvinnurekendur það sem ástæðu
ójafnaðar að konur þurfi að hverfa frá
störf um um lengri eða skemmri tíma vegna
barneigna en Vigdísi finnst þau rök langt
frá því haldbær. „Einmitt af því að konan
gengur með börnin ætti körlum að finnast
svo mikið til koma að þeir jöfnuðu glaðir
misréttið í launamálum karla og kvenna!“
Hún nefnir einnig jafnréttisfræðslu í
skól um. „Ég er hlynnt því að við ræktum
strákana okkar með það að leiðarljósi að
konur séu jafningjar þeirra. Að bæði strákar
og stelpur finni að jafnrétti ríki á milli
þeirra, einkum á unglingsárunum þegar
fólk er að mótast. Margir í kynslóðinnni á
undan mér voru svolítið hallir undir það að
konur væru ekki jafningjar karla. Þó vita
allir pabbar að dætur þeirra eru jafngóðar
og strákarnir og allir bræður það sama um
systur sínar. Ég vil styrkja bæði strákana
okkar og stelpunar í þeirri vitneskju að þau
séu jafnokar á öllum sviðum og að bæði
strákar og stelpur hafi sama rétt til að vera
til á því breiða litrófi sem spannar það að
vera manneskja.“
jafnrétti er stærsta verKefni
samfélagsins
Vigdís lítur svo á að jafnrétti kynjanna sé
einnig stærsta og mikilvægasta verkefni
alþjóðasamfélagsins. „Ég hef þá kenningu
að til þess að heiminum verði borgið, ef
honum verður borgið því heimurinn er
í stöðugri hættu, þá verði að leggja allt
kapp á að auka þekkingu kvenna. Ég hef
tekið þátt í læsisátökum UNESCO og það
er svo fallegt að sjá þegar konur læra að
lesa. Maður sér þær hækka, þær teygja úr
sér og vaxa og það kemur í þær einhver
sjálfsvitund um styrk. En meirihluti kvenna
í heiminum hefur því miður ekki þekkingu
og menntun og án þekkingar geta þær ekki
til dæmis tekið afstöðu gegn viðteknum
hefðum í eigin samfélögum, einkum af því
þær hafa ekki völd og málfrelsi.“
Í framhaldi af þessu og að því gefnu að
þekking kvenna geti bjargað heiminum
leik ur blaðamanni forvitni á að vita hver
skoð un Vigdísar er á kynjakvótum, til
dæm is í stjórnum fyrirtækja. Hún tekur
fram að þar sé mjög ólíku saman að jafna,
þriðja heiminum annars vegar og Vestur
lönd um hins vegar, en bætir við: „Ég er
heldur á móti kvótum varðandi konur og
karla, – segir reyndar margt um tilhneigingu
þjóðfélagsins að það þurfi að hafa kvóta
til réttlætingar, – það eiga allir að njóta
sín jafnt. Jafnrétti er mannréttindi og það
á alltaf að taka tillit til getu, menntunar
og hæfni hvort sem í hlut á karl eða kona.
Kynjakvóta ætti ekki að þurfa til heldur
ætti að vera sjálfsagt að hlutur karla og
kvenna sé jafn. En það er nú því miður ekki
sjálfsagður hlutur að kynin sitji við sama
borð og karlar virðast vera valdir frekar en
konur í ýmis ábyrgðarstörf. Karlar virðast
til dæmis alltaf græða á því í þessu samhengi
að þeir fæða ekki börnin. Þess vegna er
feðraorlof gríðarlega mikilvægur hluti af
jafnréttisbaráttunni, bæði svo karlar fái að
mynda tengsl við börn sín en einnig svo þeir
taki líka á sig hluta af þeirri samfélagslegu
ábyrgð sem felst í því að eignast börn.
Það er þjóðfélagsins og allra fyrirtækja að
vega og meta þegar fólk er ráðið í störf,
hvort sem það er karl eða kona, hvernig
samfélagið er samansett. Mér finnst að
það eigi að meta hæfileika hvers og eins
en horfast um leið í augu við samsetningu
sam félagsins, þar sem karlar og konur eru
jafnmörg og jafnmikilvæg.“
tungumÁlin opna heiminn
Vigdís hefur átt mjög gott samstarf og vin
áttu við leiðtoga heimsins bæði frá for seta
tíð sinni og líka síðar. „Ég er í nokkrum
samtökum fyrrverandi þjóðarleiðtoga og
áhrifafólks í heiminum, og má þar nefna
Club de Madrid og InterAction, sem Mary
Robinson, fyrrverandi forseti Írlands,
kallar dínósárana en við vorum lengi einu
tvær konurnar þar. Félagsmenn eru allir
fyrrverandi forsetar, forsætisráðherrar eða
utanríkisráðherrar. Við hittumst á ýms
um stöðum í heiminum og sjónum er þá
beint að ástandi mála á þeim stað sem við
hittumst. Þessi samtök álykta út frá því sem
þau verða vísari á hverjum stað fyrir sig og
senda svo ályktunina til þjóðarleiðtoga til
að þrýsta á þá um umbætur. Ég hef alltaf
verið að hamra á því við þessa fyrrverandi
kollega mína að hafa nú allavega eina
setningu sem snýr að stöðu kvenna í þeim
ályktunum sem þeir senda frá sér og fyrir
tveimur árum hafði ég það í gegn að það
yrði að huga að stöðu kvenna í ýmsum
löndum. Þetta er mjög gefandi samstarf
sem gefur innsýn í það sem er að gerast í
heiminum og tækifæri til að skilja og hafa
áhrif.“ Þetta samstarf minnir Vigdísi sífellt
á hvað það er mikilvægt að kunna fleiri
tungumál en sitt eigið. „Tungumálin opna
heiminn og sýna málefni og veröldina
með nýjum augum. Með því að geta talað
tungu mál er hægt að setja sig svo vel inn í
samfélagið þar sem tungumálið er talað. Og
ég er svo lánsöm að hafa á lífsleiðinni lagt
mig eftir að læra tungumál annarra þjóða
Ég vil styrkja bæði strákana okkar og
stelpurnar í þeirri vitneskju að þau
séu jafnokar á öllum sviðum og að
bæði strákar og stelpur hafi sama rétt
til að vera til á því breiða litrófi sem
spannar það að vera manneskja.
Einmitt af því að konan gengur með
börnin ætti körlum að finnast svo
mikið til koma að þeir jöfnuðu glaðir
misréttið í launamálum karla og
kvenna!
Höldum
áfram
Hjá KPMG eru jafnréttismál í hávegum höfð
en félagið var með þeim fyrstu til að hljóta
Jafnlaunavottun VR og skipa stjórn með jöfnu
kynjahlutfalli. Nú starfa 220 manns
hjá félaginu með jöfnu hlutfalli karla
og kvenna. Við höldum áfram að
leggja okkar af mörkum í þágu
jafnréttismála.
kpmg.is
Í Ólafsvík fyrir forsetakosningarnar 1980. Ungur blaðamaður á Vísi, Páll Magnússon, tekur viðtal
við Vigdísi rétt á meðan hún hefur sig til og setur Carmen-rúllur í hárið fyrir kosningafund.