Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 57
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 57
Þórunn guðMundsdóttir
HæSTARÉTTARLÖGMAÐuR oG FoRMAÐuR
BAnKARÁÐS SeÐLBAnKAnS
Hún hefur setið í ýmsum nefndum, ráð -
um og stjórnum á vegum hins opinbera og
einkaaðila. Hún var t.d. um tíma formaður
kjörstjórnar reykjavíkur norður. Þórunn
var kosin í bankaráð seðlabankans af
Alþingi í mars síðastliðnum í stað Ólafar
Nordal sem hætti í ráðinu er hún tók við
embætti innanríkisráðherra.
Fjármál og bankar
Fjölga
þarf konum í
framkvæmdastjórnum
Samfélagið hefur gjörbreyst í raun á mjög stuttum tíma, m.a. með breyttri þátttöku kvenna í samfélaginu. Risastórt skref var tekið með kosningarétti kvenna
til Alþingis sem leiddi m.a. til meiri og
fjölbreyttari þátttöku á vinnumarkaði,
aukinnar kröfu til menntunar og kröfu
um jöfn laun. T.d. er skýr mynd af þessum
breytingum sú að amma sem var fædd
árið 1914 hafði afar lítið val um hvað hún
vildi starfa við. Hún var afburða klár en
hafði enga möguleika á menntun og litla
mögu leika á starfsframa. Hún var fædd
og uppalin í Vestmannaeyjum og kláraði
þá skólaskyldu sem börnum stóð til boða
á þeim tíma. Enginn framhaldsskóli var í
Eyjum þegar hún var að alast upp og hún
hafði enga möguleika á að fara upp á land
að mennta sig þar sem alþýðufólk hafði
ekki peninga í slíkt.“
Hvaða framfarir ertu ánægðust með í
rekstri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á
undan förnum árum?
Það var afar ánægjulegt að sjá við gerð
síðasta ársreiknings að tryggingafræðileg
staða Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur
styrkst mjög og var jákvæð um 5,1%.
Raun ávöxtun síðasta árs hjá sjóðnum var
einnig afar góð; 8,7%. Einnig var það já
kvætt að sjóðurinn fékk á síðasta ári jafn
launavottun VR.“
Hver telur þú vera brýnustu verkefni á
borðum íslenskra stjórnenda um þessar
mundir?
Mikilvægt er að fjölga konum í fram
kvæmda stjórnum fyrirtækja. Jafnframt tel
ég að stjórnendur bæði á almenna mark
aðnum en ekki síður þeim opinbera þurfi
að útrýma kynbundnum launamun.“
Hvað líkar þér almennt best í fari
stjórnenda og leiðtoga?
„Heilindi, traust, virðing, snerpa.“
Hver telur þú vera brýnustu verkefni innan
atvinnulífsins um þessar mundir?
„Brýnasta verkefnið er að aflétta fjár
magns höftum því þau hamla vexti hér á
landi. Einnig er mikilvægt að fara í heild
a r stefnumót un varðandi vax andi ferða
manna iðn að á Íslandi. Þessi mikli vöxtur
á at vinnugreininni er auðvitað mjög já
kvæður en það þarf samt sem áður um ræðu
um hvert við viljum stefna. Mörg um spurn
ingum er ósvarað, t.d. hvort takmarka eigi
að gang að einhverjum stöðum. Kallar þessi
mikla aukning á að öryggis mál séu skoðuð
og vantar á einhverja staði meiri lög gæslu?
Vantar á vinsæla/mikilvæga staði innviði og ef
svo hver er forgangsröðunin á uppbyggingu
innviða?“
Hvaða konur hafa verið þér fyrirmynd í
stjórnun?
„Margar konur koma upp í hugann en
fyrst auðvitað mamma því hún er mikill
skörungur, ósérhlífin, sanngjörn og hlý.
Hún hefur unnið erfiðisvinnu alla sína ævi
og samhliða því komið fjórum börnum til
manns. Af þekktari nöfnunum verð ég að
nefna Hillary Clinton, Margaret Thatcher
og Vigdísi Finnbogadóttur. Ég er langt
frá því hrifin af öllum þeirra stefnumálum
en þessar konur virtust vera algjörlega
óhræddar við áskoranir, þær tókust á við
ríkjandi gildi, vissu hvert þær vildu stefna
og létu ekkert stoppa sig og alls ekki
óskrifuðu leikreglurnar sem voru þeim ekki
hliðhollar.“
formaður landssamtaka lífeyrissjóða.
ásta rut
Ásta Rut Jónasdóttir. „Brýnasta verkefnið
er að aflétta fjár magns höftum því þau
hamla vexti hér á landi. Einnig er mikilvægt
að fara í heilda r stefnumót un varðandi vax
andi ferða manna iðn að á Íslandi.“
Ásta Rut Jónasdóttir, formaður
stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Fjármál og bankar
viðTöl: Svava JónSdóTTir