Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 92
92 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
kynslóð var á sama tíma. Staðalímyndirnar
um konur breytast þó seint, því miður,“
segir Salvör og bætir við:
„Sá árangur sem við sjáum hefur ekki
komið baráttulaust og því miður hefur á
mörgum sviðum orðið að gera sérstakt
átak og setja lög. Skýrt dæmi um þetta
er átak til að fjölga konum í stjórnum
fyrirtækja. Auðvitað hefði verið best ef
ekki hefði þurft að grípa til lagasetningar
en nú sjáum við árangurinn og gjörbreytta
stöðu frá því sem var fyrir hrun þótt
enn séu of fáar konur í stöðu stjórnenda
stærstu fyrirtækjanna. Á mörgum öðrum
sviðum hallar ennþá á konur, til að mynda
meðal stjórnenda fjölmiðla. Það er líka
áhyggjuefni hve margar konur staldra stutt
við í stjórnmálum. Það er full ástæða til
að ræða hvers vegna svo er. Ég held að
við þurfum sífellt að halda vöku okkar í
jafnréttismálum. Eftir að formlegu jafnrétti
hefur verið náð hafa sjónir manna beinst
meira að óbeinum atriðum, svo sem
eins og afstöðu til kvenna eða strúktúr í
fyrirtækjum eða samfélögum. Þessa þætti
er erfiðara að greina eða koma í orð. Þá
er mikilvægt að sjá þessa sterku hreyfingu
ungra kvenna gegn ofbeldi sem er svo
gríðarlegt vandamál um allan heim.“
mörg vandasöm Álitaefni
Hefur þú skoðun á því hvernig siðferði
hefur þróast undanfarin 100 ár? „Það
er ómögulegt að meta þróun siðferðis á
100 árum. Sjálfsagt fer okkur á sumum
sviðum fram en á öðrum aftur. Innan
siðfræðinnar sem fæst við tilteknar sið
ferðilegar spurningar er verið að fást við
mörg vandasöm álitaefni, ekki síst sem
spretta upp vegna tækniframfara. Í starfi
mínu hjá Siðfræðistofnun á síðustu árum
hef ég fengist mikið við spurningar á sviði
heilbrigðis og lífsiðfræði, spurningar um
staðgöngumæðrun, lífslokameðferðir og
rannsóknir á sviði erfðafræði. Einnig er
mikil umræða í siðfræðinni um afstöðu okkar
gagnvart dýrum og náttúru, spurningar í
viðskiptasiðfræði og loks lýðræði og sam
félag. Það vantar ekki spenn andi verkefni
sem endurspegla oft stórfelld vandamál sem
við sem manneskj ur stöndum frammi fyrir á
hverjum degi,“ útskýrir Salvör.
sKortur Á mÁlefnalegri umræðu
Reglulega ber umræðuhefðina á Alþingi
á góma og þannig komst í hámæli þegar
yngsti þingmaður landsins, Jóhanna María
Sigmundsdóttir, lét þingheim heyra það og
krafðist þess að nýtt háttalag yrði tekið upp
á sínum vinnustað, bæði í ræðu og riti.
„Ég held að flestir telji að bæta megi
verulega þjóðfélagsumræðuna hér á landi,
en það virðist vera mjög erfitt að breyta
henni. Okkur skortir mikið það sem ég
hef kallað greinandi orðræðu, þ.e. að
vandamálin séu greind á þann veg að hægt
sé að gera sér grein fyrir um hvað er deilt,
en slíkt er forsenda þess að hægt sé að
eiga málefnalega umræðu sem byggist á
skynsamlegum rökum. Þess í stað er oftar
en ekki tekist á með útúrsnúningum, en
slík orðræða skilar nákvæmlega engu.
Þrátt fyrir margra mánaða deilur, jafnvel
áralangar, erum við oft engu nær um
vandamálið sem um er rætt og hvað þá að
hægt sé að nálgast einhverja niðurstöðu
eða samkomulag um hvernig eigi að leysa
þau. Þvert á móti virðist slík orðræða til
þess fallin að auka á ágreininginn eða
viðhalda rifrildinu.“
Þurfum að snÚa böKum saman
Það er ekki eingöngu umræðuhefðin á
Alþingi sem er vandamál í íslensku þjóð
félagi núna heldur einnig það að við þurf
um að vinna sameiginlega að fram tíðar sýn
að mati Salvarar.
„Íslenskt samfélag er lítið og viðkvæmt
og við þurfum að hlúa að því ef það á
að dafna. Á síðustu misserum hafa verið
djúpstæðar deilur um mörg grundvallarmál
og lítil lausn í sjónmáli. Eina leiðin til að ná
að komast úr þeim vanda sem við erum í er
að snúa bökum saman. En til þess þurfum
við að hafa kjark til að ræða af alvöru um
okkar framtíðarsýn. Þetta snýst um að
virkja raunverulegt vald til þess að breyta
og koma góðum hlutum áfram. Í staðinn
finnst mér við láta reka á reiðanum og vitum
ekki hvert við stefnum og allt of mikil orka
fer í umræðu sem litlu sem engu skilar. Því
miður virðist mér þetta hafa leitt til aukins
áhugaleysis á okkar sameiginlegu málum og
þar með veikara samfélags,“ segir Salvör.
Í stað málefnalegrar umræðu er oftar
en ekki tekist á með útúrsnúningum,
en slík orðræða skilar nákvæmlega
engu. Þrátt fyrir margra mánaða
deilur, jafnvel áralangar, erum við
oft engu nær um vandamálið sem
um er rætt.
„Ég held að flestir telji að bæta megi
verulega þjóðfélagsumræðuna hér á
landi, en það virðist vera mjög erfitt
að breyta henni.
Í starfi mínu hjá Siðfræðistofnun á
síðustu árum hef ég fengist mikið
við spurningar á sviði heilbrigðis
og lífsiðfræði, spurningar um
staðgöngumæðrun, lífslokameðferðir
og rannsóknir á sviði erfðafræði.
„Ég held að flestir telji að bæta megi verulega þjóðfélagsumræðuna hér á landi, en það virðist
vera mjög erfitt að breyta henni.“
í stjórn Haga.
salvör