Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 112
112 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
M Mér finnst fæðingarorlof fyrir feður hafa staðið upp úr í kvennabaráttunni síð ustu áratugina.
Nú eru það ekki bara konur sem fara í
fæðingarorlof heldur líka karlar. Konur
fara í fæðingarorlof að jafnaði bara í 25 ár
af starfsævi sinni á meðan karlar geta farið
í fæðingarorlof næstum alla starfsævina. Þó
hefur komið aðeins bakslag eftir að hámark
fæðingarorlofsgreiðslna var lækkað. Ég
tel einnig að kynjakvótinn í stjórnir stærri
fyrirtækja hafi verið rétt ákvörðun.“
Hvaða framfarir ertu ánægðust
með í rekstri Rannsóknarnefndar
samgönguslysa?
„Með nýjum lögum um RNSA árið 2013
voru þrjár nefndir; Rannsóknarnefnd
flugslysa, Rannsóknarnefnd sjóslysa og
Rann sóknarnefnd umferðarslysa, sam
einaðar í eina. Nefndin er áhrifaaðili í
sam göngumálum og leggur fram, ef þurfa
þykir, tillögur til úrbóta og ábendingar til
viðkomandi flugrekenda, sjófarenda, bif
reiðarekstraraðila, einstaklinga, stofnana
eða jafnvel erlendra flugvéla, skipa eða
bílaframleiðenda. Tilgangurinn er sem
fyrr að auka öryggi í samgöngum. Ég er
mjög ánægð með hversu vel sam einingin
hefur tekist. Mikil reynsla og þekk ing
hinna ólíku sviða nýtist á öll um sviðum,
stefnumótunarvinna hefur gengið vel og
hópurinn er samhentur. Með nýju lögunum
kom inn mjög mikilvægt laga ákvæði um
að ekki má nota skýrslur rann sóknar
nefnd arinnar í dómsmáli, enda er hlutverk
nefndarinnar að finna orsök slysa, benda
á það sem betur má fara til að koma í veg
fyrir önnur en ekki skipta sök og ábyrgð.“
Hver telur þú vera brýnustu verkefni á
borðum íslenskra stjórnenda um þessar
mundir?
„Ég tel brýnast að skapa betri umgjörð
fyrir fjölskyldufólk, auka traust og gera
búsetu á Íslandi meira aðlaðandi. Ungt
fólk mun flytjast búferlum til útlanda ef
aðstæður þar eru betri en hér á landi. Ég
tel einnig að stjórnvöld þurfi að marka
stefnu til mun lengri tíma en nú er gert,
t.d. varðandi heilbrigðismál, skólamál og
samgöngur.“
Hvað líkar þér almennt best í fari
stjórnenda og leiðtoga?
„Heiðarleiki, sanngirni, áræði, góð til
finningagreind og góð fyrirmynd. Ég tel
einnig mikilvægt að stjórnendur séu í góðu
sambandi við framlínuna í fyrirtækinu,
þ.e. þá sem eru í beinum tengslum við
viðskiptavini félagsins.“
Hver telur þú vera brýnustu verkefnin
innan atvinnulífsins um þessar mundir?
„Ég tel að eftir þau átök sem hafa verið á
vinnumarkaðnum að undanförnu sé það
brýnasta verkefnið að skapa sátt innan
atvinnulífsins. Mikilvægt er að allir aðilar
horfi saman til framtíðar og vinni í sátt að
sameiginlegum markmiðum.“
Hvaða konur hafa verið þér fyrirmynd í
stjórnun?
„Móðir mín, Kristjana Milla Thorsteinsson,
var ein fyrsta konan á Íslandi til að setjast í
stjórn stórfyrirtækis og er hún sú kona sem
er mín helsta fyrirmynd í stjórnun. Hún var
kjarkmikil, réttlát, samkvæm sjálfri sér og
fylgin sér. Ég get einnig bent á Rannveigu
Rist sem ég hef fylgst með frá því við
vorum saman í verkfræðinni, Katrínu Olgu
Jóhannesdóttur, Helgu Hlín Hákonardóttur,
Ragnhildi Hjaltadóttur og systur mína,
Áslaugu Alfreðsdóttur. Það eru svo margar
frábærar konur sem eru stjórnendur sem
hægt er að taka sér til fyrirmyndar.“
Geirþrúður Alfreðsdóttir, flugstjóri og formaður
Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA)
samgöngumál
í stjórn efíA, eftirlaunasjóðs félags
íslenskra atvinnuflugmanna.
geirþrúður
með tillögur til úrbóta í
samgöngumálum
geirÞrúður Alfreðsdóttir
FLuGSTJÓRi oG FoRMAÐuR
RAnn SÓKn AR neFnDAR SAMGÖn-
GuSLySA
Flugstjóri og formaður rann -
sóknar nefnd ar samgönguslysa
(rNsA). Nefndin er áhrifa aðili í
sam göngumálum og leggur fram
tillögur til úrbóta og ábendingar til
viðkomandi flugrekenda, sjófarenda,
bif reiðarekstraraðila og einstaklinga.
(Stafrófsröð) ÁHRIFAMESTU samgöngumál
Nefndin
rAgnA árnAdóttir
AÐSToÐARFoRSTJÓRi LAnDSViRKJunAR oG
FoRMAÐuR SAMRÁÐSVeTTVAnGS uM AuKnA
HAGSæLD
Hún er formaður samráðsvettvangs um aukna
hagsæld og formaður stýrihóps um innanlandsflug.
eftir skýrslu síðarnefnda hópsins var beðið með
með mikilli eftirvæntingu vegna framtíðar reykja -
víkurflugvallar og skilaði stýrihópurinn skýrslu sinni
nýlega og valdi Hvassahraun sem nýjan flugvöll
fyrir reykjavík. Þá situr ragna í stjórn CCP.
Geirþrúður Alfreðsdóttir. „Heiðarleiki, sann
girni, áræði, góð til finningagreind og góð
fyrirmynd.“