Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 128
128 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
úr öllum áttum og við upplifum
auknar kröfur um að gera meira
á minni tíma. Tíminn er af skor
num skammti. Þeir hafa forskot
sem hafa hæfni til að endurheim
ta einbeitingu fljótt eftir truflun
og ná að halda einbeitingu þann
litla tíma sem okkur er gefinn
til slíkra verka. Þetta útheimtir
getu til að stýra athygli sinni og
einbeita sér fullkomlega að einu
verkefni eða einni manneskju í
einu og loka á utanaðkomandi
truflun. Einbeitingarstundin er
í raun miðpunktur fræðanna
að baki Hugarorkulyklunum.
Hún er fyrir þá sem hugsa ekki
ein göngu um heilbrigði heilans
heldur frammi stöðu í starfi.
hvernig Komum við and
lega nærð og hress heim
Úr vinnu?
Þegar við upplifum streitu
aftengist heilinn oftar verkefninu
sem verið er að vinna að og við
stöndum okkur að því að stara á
tölvuskjáinn annars hugar. Um
leið og við áttum okkur á rofinu
og ætlum að halda áfram við
verkið finnum við oft gríðar
lega þörf fyrir að standa upp
og ná okkur í smá súrefni eða
nasl. Þarna er heilinn á öskra
á hreyfingu og næringarefni
sem hjálpa okkur að halda
uppi orku til að vinna áfram. Við
setjumst við tölvuna og teljum
okkur tilbúin til að einbeita ok
kur en vantar sköpunarkraft til
að leysa úr verkefninu, höllum
okkur pirruð aftur í stólinn og
munum allt í einu eftir brandara
sem við heyrðum í hádeginu og
hlæjum innra með okkur, jafnvel
upphátt. Skyndilega fáum við
hugmynd sem hjálpar okkur að
leysa verkefnið. Þarna erum við
ómeðvitað leidd áfram af þörfum
heilans en erum ekki sjálf við
stjórnvölinn. Við kunnum að hafa
leyst verkefnið, komum heim
eftir vinnudaginn og teljum okkur
hafa átt árangursríkan dag, en
erum samt pirruð og orkulaus.
orKulaus – hvernig mætti
breyta Þessu?
Hvernig væri að hefja daginn
eftir góðan nætursvefn og nota
tækifærið meðan hugurinn er
fersk ur og forgangsraða verkefn
um dagsins.
1. Skipuleggja stutt hádeg
is hlé með 10 mínútna
hugleiðslu.
2. Ákveða að fara í hjólatúr
með góðum vini eftir vinnu
og fá þannig bæði hreyfi
stund og tengslastund á
einu bretti.
3. Að skipuleggja fundi
dagsins strax og vinnu
dagurinn hefst þannig að
þeir verði í góðri blöndu
við stundir þar sem þú
ætlar þér að ná fullri ein
beitingu í verkefni.
4. Ef þetta gengur eftir
kemurðu heim úr vinn
unni enn með næga orku
eftir til að leika þér með
börnunum eða vinum og
nærð þannig að haka við
alla þættina sjö á listanum
fyrir kvöldið.
Þurfum fjölbreyttari
endurnæringu – eKKi
bara svefn!
Aðalatriðið er að þekkja þessa
sjö þætti og nýta á hverjum degi
þau andlegu „næringarefni“ sem
eru þér nauðsynleg og að vera
með gott jafnvægi þessara sjö
þátta. Rétt eins og við getum
ekki lifað eingöngu á sushi þótt
okkur finnist það gott getum
við ekki sótt orku okkar í svefn
eingöngu þótt vissulega sé
hann góður og end ur nærandi.
Rannsóknir Siegels og Rocks
sýna fram á að með því að fylgja
þessum sjö þáttum sem þeir
leggja til ertu komin/n með upp
skrift að líkamlegu og andlegu
heilbrigði sem hjálpar þér að
viðhalda góðum samskiptum við
fjölskyldu, vini og vinnufélaga.
Ekki er skilgreindur tími fyrir
hvern þátt enda getur það verið
misjafnt fyrir hvern og einn – og
þarfir okkar breytast einnig með
tímanum. Ein leið til að nota
Hugarorkulyklana (The Healthy
Mind Platter) er að skrifa upp
venjulegan dag og rýna í hvað
þú verð miklum tíma í hvern þátt.
Rétt eins og góð máltíð þá eru
margar samsetningar sem geta
virkað.
Hleðslustund á sér oft stað þegar við erum að bíða eftir einhverju, t.d. á meðan við blöðum í
gegnum tímarit á bið stofunni, hlustum á tónlist, slökum á og dreymir dagdrauma.
RáðgjAFARFyRIRtækIð AttENtuS:
Þær Skrifa reglulega um Stjórnun í frjálSa verSlun
fimm eigendur og stjórnunarráðgjafar hjá attentus skrifa reglulega um stjórnun í frjálsa verslun og hafa greinar þeirra
vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Talið frá vinstri: ingunn Björk vilhjálmsdóttir, inga Björk hjaltadóttir, Sigrún
Þorleifsdóttir, árný elíasdóttir og Guðríður Sigurðardóttir.