Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 6
6 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 Framtíðin er björt PFAFF - GRENSÁSVEGI 13 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI 414 0400 - WWW.PFAFF.IS Pfaff býður ykkur velkomin í glæsilega, nýendurbætta verslun á Grensásvegi. Hjá okkur færðu saumavélarnar, Sennheiser heyrnartólin, heilsuvörur og eitt mesta úrval landsins af ljósum. Í tilefni af breytingunum er verslunin full af glænýjum gæðavörum. Komdu í heimsókn. Við tökum vel á móti þér. LJÓS OG LÍFSSTÍLL Í 85 ÁR Íslendingar teljast siðmenntuð þjóð – sem þó er með nokkra alvarlega ósiði. Ósiðir í siðuðu samfélagi S tundum er sagt að eitthvað eigi ekki heima í siðuðu og upplýstu samfélagi. Íslenskt samfélag telst siðmenntað – en það hefur engu að síður áberandi ósiði sem hafa magnast á undanförnum árum. Sá versti er líklegast skortur á málefnalegri umræðu; rökræðum, og spyrja má sig hversu upplýst fólk er um brennandi samfélagsmál þótt það krefjist þess að búa í upplýstu samfélagi. Einn af mörgum viðmælendum Frjálsrar verslunar í þessu tölublaði, Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur einmitt orð á því að skortur sé á málefnalegri umræðu í íslensku samfélagi og að okkur Íslendinga skorti grein andi orðræðu og umræðuhefðin einkennist meðal annars af útúrsnúningum. Eflaust eru ýmsar ástæður fyrir vöntun á málefnalegri umræðu en halda má því fram að veruleg breyting hafi orðið á áhuga fólks á að setja sig inn í mál, greina þau og finna rök með og á móti. Útúrsnúningar eru ómál ­ efnaleg við brögð við málefnalegum umræðum. Orð ­ ræðan snýst sömuleiðis allt of mikið um fyrirfram ákveðnar skoð anir eftir því hvar fólk stendur í pólitík og á hvaða stjórnmálamönnum það hefur mætur – eða þá ímugust. Skortur á málefnalegri umræðu hefur smitast inn á Alþingi svo virðing þess hefur látið á sjá. Fundar ­ sköpin á Alþingi eru engum til sóma og þau eru úr sér gengin þegar svo er komið að minnihlutinn á þingi tekur hvert málið af öðru í gíslingu og tefur það með langlokum um fundarstjórn forseta þings ins. Hvers vegna í ósköpunum eru ekki sett tímamörk á umræður? Hvernig má það vera að stjórnarflokkar með öruggan þingmeirihluta heykist á að fara með mál í gegnum þingið af ótta við að minnihlutinn taki þau í gíslingu? Það, hvernig gefið er eftir í stórum málum til að ná samkomulagi um þinglok, er íhugunarefni. Sómi fer af þingi þegar umræðan hættir að vera málefnaleg; sama hver á í hlut. Stjórnarandstaðan talar ekki einu sinni undir rós heldur segir beint út að hún hleypi ekki málum í gegn ef þau eru henni á móti skapi. Þegar svo er komið á þingræðið undir högg að sækja. Á sama tíma og haldið er upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hefur virðing fyrir kosninga ­ réttinum og þingræðinu snarminnkað. Það speglast meðal annars í því að hópur fólks tekur hátíðardagskrá Alþingis og forsætisráðuneytisins á þjóðhátíðardaginn yfir með ófriðsamlegum mót ­ mæl um. Mótmælin á Austurvelli á þjóðhátíðar ­ daginn voru ljótur blettur á virðingu fyrir frelsi og stofnun lýðveldisins – sem og niðurstöðum kosn inga. Þau voru þeim sem að stóðu til skammar. Það er alvarlegt íhugunarefni að á meðal forystumanna á þingi, sem mælast vinsælir í könn unum um þessar mundir, séu þeir sem telja í lagi að vera með hávær mótmæli á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn og taka hátíðardagskrá Alþingis yfir með trumbuslætti og hávaða. Að þeim finnist í lagi að eyðileggja þá merku stund þegar þing og þjóð halda upp á stofnun lýðveldisins, þegar Íslendingar öðluðust frelsi og sjálfstæði. Frelsi til að mótmæla, tjá sig og segja skoð un sína er helgur réttur hvers og eins. En hann getur aldrei gengið út á að valta yfir frjálsar samkomur annarra. Frelsi einstaklingsins takmarkast alltaf við það að hann gangi ekki á frelsi annarra. Ef einhver er ósáttur með ríkisstjórnina eða önnur mál hefur hann engan rétt á að skemma fyrir öðrum sem koma saman og eyðileggja þá samkomu með hávaða og látum. Þá hefur lýðræðið snúist við. Þeir sem hafa áhuga á að mótmæla ríkisstjórninni á þjóðhátíðardaginn verða að velja sér annan stað og annan tíma en Austurvöll þegar hátíðardagskrá Alþingis fer fram og lagður er blómsveigur frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar forseta. Það er svo eftir öðru þegar málsmetandi fólk í samfélagslegri umræðu ber í bæti fláka fyrir þessa hegðun á sautjánda júní og segir hana skiljanlega vegna þess að fólk sé svo reitt. Í rökleysunni fyrir mótmælunum seilast frasaglaðir álitsgjafar í að nefna að Jón Sigurðsson hafi sagt á þjóðfundinum 1851; Vér mótmælum allir, og því sé við hæfi að mótmæla við hátíðardagskrána á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn. Verra dæmi er ekki hægt að finna; frelsishetjan mótmælti því að konungsfulltrúinn ætlaði að leysa fundinn upp í nafni konungs. Mótmælendur á Austurvelli voru í hlutverki konungsfulltrúans og leystu hátíðarfund Alþingis meira og minna upp með yfirgangi og skrílslátum. Í þessu blaði Frjálsrar verslunar, sem helgað er áhrifa konum í samfélaginu og jafnréttis ­bar áttunni, er þess minnst að 100 ár eru frá því að konur á Íslandi fengu kosningarétt til Alþingis – með þeim fyrstu í heiminum. Það eru merk tímamót. En ef virðing þingmanna sjálfra fyrir Alþingi er lítil – sem og virðing samfélagsins fyrir þinginu, hátíðardagskrá þingsins, kosningaréttinum, þingræðinu, rétt kjörnu stjórnvaldi, málefnalegri umræðu og rökræðum almennt – þá dregur það óneitanlega úr hátíðleika afmælisins. Afmæli kosningaréttarins er hátíðleg stund sið ­ mennt aðrar þjóðar. Á þeirri hátíðarstundu fer vel á því að kasta fyrir róða ósiðum sem hafa grafið um sig gagnvart þessum helga rétti frelsisins. Jón G. Hauksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.