Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 163
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 163
gæðaþjónusta
Hverjir eru helstu viðskipta
vinir ION?
„Stærsti kúnnahópurinn
okkar eru einstaklingar og
þá helst frá Bandaríkjunum
og Bretlandi auk annarra
landa,“ segir Katrín Ósk.
„Þetta eru einstaklingar í leit
að einstakri upplifun á Íslandi
og þar spilar ION stóran hlut
með gistingu, mat, spa og
afþreyingarferðum sem við
bjóðum upp á. Við fáum einnig
fundar og hvatahópa sem vilja
koma í fallegt umhverfi, funda
og efla hópinn. Við bjóðum
upp á heildarpakka fyrir fyrir
tækjahópa sem innihalda fundi,
hópefli, mat og gistingu.“
Eruð þið með einhverja
sérstaka stefnu varðandi ímynd
og menningu fyrirtækisins?
„Við leggjum mikla áherslu
á að gestir okkar upplifi orku
náttúrunnar sem umvefur
hótelið ásamt íslenskri menn
ingu. Við spilum einungis ís
lenska tónlist á hótelinu, öll
listaverk eru eftir íslenska
lista menn og öll smáatriði sem
eru á hótelinu tengjum við við
Ísland og menningu og náttúru
landsins.
Við viljum styrkja samfélagið
í nágrenninu og það gerum
við með því að kaupa beint
frá bændum ferskt hráefni líkt
og lamb og silung úr Þing
valla vatni. Við bjóðum upp á
gönguferðir um Hengilssvæðið
með leiðsögumanni sem ólst
upp á svæðinu og býr við Þing
vallavatn. Einnig sjá bændurnir
á svæð inu um snjómokstur
fyrir okkur á veturna.
Með þessari samvinnu og
stefnu hó telsins viljum við
byggja upp ímynd þess sem
um hverfis vænt hótel sem býður
upp á gæða þjónustu í fal legu
umhverfi.“
konur eru klárar
Konur eru í fimm stjórn unar
stöðum á ION. Sigurlaug
Sverrisdóttir, eigandi hótelsins
og framkvæmdastjóri, segir að
það sé ómeðvituð þróun.
„Ég tel jafnmikilvægt að jafn
rétti vinni í báðar áttir og að
fólk sé ávallt metið að verð
leikum en ekki kyni, litarhætti
eða öðrum ótengdum þáttum.
Konur eru klárar og kannski
hef ég ómeðvitað ráðið konur
í stjórnendastörf innan ION en
ég er alveg sannfærð um að ég
er með bestu einstaklingana í
öllum þessum störfum. Ég trúi
því að við höfum öll sama rétt
en ég held að konur þurfi oft
að hafa meira fyrir framanum
og viður kenn ingunni. Það
verða fleiri hindranir á
veginum sem við þurfum að
stökkva yfir en með æfingunni
gerist það sjálfkrafa.“
Telur þú að nauðsynlegt hafi
verið að setja lög um kynja
kvóta um setu í stjórnum
fyrirtækja?
„Mér þykir afskaplega leiðin
legt að þurfa að játa þessu því
ég er alls ekki fylgjandi því að
þvinga fram kynjakvóta með
lögum – líkt og í önnur störf á
að velja hæfustu einstaklingana
til að stýra fyrirtækjum en því
miður er ennþá of algengt að
þegar talað er um forstjóra eða
framkvæmdastjóra sé karlkyns
einstaklingur hafður í huga
enda eru titlarnir karlkyns
nafn orð.
Ég vil heldur vera talin álit
leg vegna þekkingar og getu
fremur en að vera þving að
til stjórnarsetu vegna kynja
kvóta.“
á réttri braut
Hvað varðar stöðu kvenna
innan atvinnulífsins á síðustu
árum segir Sigurlaug að margt
gott hafi unnist og að viðhorf
fólks sé á réttri braut. „Ég
held hins vegar að við eigum
langt í land og þess vegna er
mikilvægt að halda þétt um
taumana.
Aðgerðaáætlun velferðar
ráðuneytisins, jafn réttis þing,
kynjakvóti í stjórn um fyrir
tækja, UN Women, Jafn
réttis stofa, Femínistafélagið,
FKA og fleiri hafa bætt stöðu
kvenna á seinustu árum en ég
held að þær kvenfyrirmyndir
sem við eigum bæði innan
lands og utan hafi góð og
langvarnadi áhrif. Vigdís
Finn bogadóttir er og hefur
lengi verið mín fyrirmynd en
hún hefur haft mikil áhrif á
ímynd kvenna og er án efa
líka fyrirmynd margra drengja
því hún er ekki aðeins góð
kvenfyrirmynd heldur góð
fyrirmynd almennt.“
Sigurlaug Sverrisdóttir. „Ég trúi því að við höfum öll sama rétt
en ég held að konur þurfi oft að hafa meira fyrir framanum og
viðurkenningunni.“
Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir. „Við bjóðum upp á heildarpakka fyrir
fyrirtækjahópa sem innihalda fundi, hópefli, mat og gistingu.“
„Við leggjum mikla
áherslu á að gestir okkar
upplifi orku náttúrunnar
sem umvefur hótelið ásamt
íslenskri menn ingu. Við
spilum einungis ís lenska
tónlist á hótelinu.“