Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 188
188 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
Ásta segir að ákveðið hafi verið að veita
styrki til að koma verkefnum af stað og þeir
voru auglýstir tvisvar, fyrst í nóvember 2014
og svo í febrúar í ár. „Það var greinilegt
að myndast hafði mikil stemning í kringum
afmælið og fjöldi umsækjenda kynnti ótrú
lega fjölbreyttar og spennandi hugmyndir.
Starf úthlutunarnefndarinnar var ekki auðvelt
en allir styrkirnir hafa þegar eða eru að
skila sér í ólíkum og spennandi viðburðum
um allt land sem tengjast afmælinu,“ segir
Ásta Ragnheiður og bætir við að það sé
bókstaflega hægt að fara hringinn og finna
eitthvað tengt afmælinu í nánast hverjum bæ
og sveit.
„Það er til dæmis stórkostlega skemmtilegt
verkefni, „Gleymum þeim ei“ í Borgarnesi,
þar sem afkomendur fimmtán kvenna settu
upp sýningu um þær og þeirra líf í sam
starfi við söfnin á svæðinu og skólakrakkar
sömdu lög við ljóð fjögurra skáldkvenna frá
Ásbjarnarstöðum. Á Blönduósi er búið að
opna sýningu sem heitir „Fínerí úr fórum
for mæðra“. Á Dalvík fær ein af landnáms kon
unum, Yngveldur fagurkinn, verðskuldaða
athygli en frá henni er sagt í Svarfdæla sögu
og hefur nú þegar verið nefnt torg í bænum
eftir henni. Á Snæfellsnesi eru Sóroptimista
klúbburinn og kvenfélögin að setja upp
sýn ingu um merkar konur á Snæfellsnesi.
Þátt takan á landsvísu er einstök.“
söfn um allt land taKa ÞÁtt
Söfn um land allt láta sitt heldur ekki eftir
liggja. „Á Alþingi er verið að safna saman
ræð um fyrstu kvennanna sem sæti áttu
á Alþingi og verða þær aðgengilegar á
vefn um. Þar gefst innsýn í hvernig fyrstu
kon unum leið, fyrir hverju þær beittu sér og
börð ust og hvernig þeirra málum reiddi af. Á
Þjóð minjasafninu er verið að fara yfir safnið
með kynjagleraugum því safnkostinum var til
skamms tíma að stórum hluta safnað af körl
um og gaman að velta fyrir sér hvað vantar
í hann til að lýsa lífi fólks á fyrri öldum á raun
sæislegan hátt. Það er líka verið að flokka
ljósmyndir og ljósmyndasöfn kvenna og gera
aðgengileg, meðal annars safn Vilborgar
Harðardóttur blaðamanns og tímaritsins
Veru. Merkar sögulegar sýningar eru bæði í
Þjóð minjasafninu og Þjóðarbókhlöðunni. Svo
var opnuð í lok maí sýning í Árbæjarsafninu,
Hjáverkin, sem sýnir hvernig heimavinnandi
konur drýgðu tekjurnar. Í Hofi er sýning á
munum sem tengjast konum sem fengnir eru
frá öllum söfnum í Eyjafirði og þannig mætti
lengi telja.“
tónlist sKipar veglegan sess
Tónlist skipar veglegan sess á afmælisárinu.
„Sinfóníuhljómsveitin var með tónleika í
júníbyrjun með tónverkum eftir íslenskar
kon ur, allt frá Jórunni Viðar til Önnu Þor
valds, og þekkt erlend kventónskáld undir
stjórn kvenstjórnanda frá SuðurAmeríku. Að
kvöldi 19. júní voru stórtónleikar í Hörpu um
konur í tónlist. KíTÓN, félag kvenna í tónlist,
stóð fyrir þeim í samstarfi við okkur en þar
var nokkuð óvæntu ljósi varpað á hlutskipti
tónlistarkvenna.“
Eitt af því mikilvæga sem afmælisárið hefur
leitt af sér eru „ömmufyrirlestrarnir“ svoköll
uðu en hundruð ef ekki þúsundir hafa hlýtt
á konur og karla segja sögu ömmu sinnar
eða langömmu í fyrirlestrum á vegum RIKK,
Rannsóknarstofnunar í jafnréttisfræðum við
Háskóla Íslands, í samstarfi við nefndina.
Markmiðið með fyrirlestraröðinni var að segja
sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar
nútíminn hóf innreið sína á Íslandi og varpa
ljósi á framlag þeirra, stöðu og aðstæður.
„Sú fyrirlestraröð byrjaði í sal Þjóðminja
safnsins en svo var alltaf verið að færa
hana í stærri og stærri sali því það var alltaf
troðfullt. Það hefur verið ákveðið að gefa
alla ömmufyrirlestrana út í haust eða vetur.
Í framhaldinu fór Þjóðminjasafnið að safna
ömmusögum. Það hallar mikið á konur í
gagna söfnum og fólk er hvatt til þess að
skrifa niður eitthvað um ömmur sínar, frá
sagnir eða jafnvel ljóð. Í framhaldinu hefur
Lands bókasafnið ákveðið að hefja söfnun
á bréfum, dagbókum og fleiru eftir konur
en gögn kvenna hafa löngum jafnvel verið
flokkuð undir nöfnum eiginmanna þeirra og
þannig verið torfundin, eða jafnvel ekki verið
talin ástæða til að geyma þau . Nú er loks
verið að skrifa kvennasöguna sem hefur
næstum verið alveg týnd.
öldin hennar Á rÚv
Fyrir utan þetta má líka nefna sjónvarps
þæt t ina Öldin hennar, sem sýndir eru á RÚV
á hverjum sunnudegi og fjalla um merka
atburði í sögu kvenna, og þátttöku Skóla
vefjarins, en þar koma vikulega inn verkefni
sem kennarar geta lagt fyrir nemendur og
tengj ast kosningar éttinum og hundrað ára
afmæli hans.
Athygli vekur að afmælið er langt frá því
að vera bundið einum degi, 19. júní, og Ásta
Ragnheiður segir að í undirbúningnum hafi
verið ákveðið að hafa meira undir. „Þetta
er svo miklu meira en einhver einn dagur
heldur er eitthvað á dagskrá allt árið. Við
byrjuðum 30. desember síðastliðinn á því
að fyrsti fyrirlestur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
frá 30. desember 1887 var fluttur í Iðnó af
leikkonum á öllum aldri og upptaka frá þeim
viðburði síðan flutt á nýársdag í Útvarps
leikhúsinu. Og síðan hafa verið viðburðir
nánast út í eitt allt árið og verður fram til
áramóta.“
„Við byrjuðum 30. desember síðast
liðinn á því að fyrsti fyrirlestur
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá 30.
desember 1887 var fluttur í Iðnó af
leikkonum á öllum aldri og upptaka
frá þeim viðburði síðan flutt á nýárs
dag í Útvarpsleikhúsinu.“
Afmælið er langt frá því að vera
bundið við einn dag, 19. júní, og segir
Ásta Ragnheiður að í undirbúningn
um hafi verið ákveðið að hafa meira
undir. „Þetta er svo miklu meira en
einhver einn dagur heldur er eitthvað
á dagskrá allt árið.“
Dagskrána má finna í heild sinni á heima-
síðunni kosningarettur100ara.is.
Krummi &Lóa
Íslensk hönnun frá heklaíslandi
www.heklaislandi.is - sími 6993366
Fæst í öllum betri búðum landsins!
NÝTT